Fyrstu fimm mánuði ársins hefur sala neftóbaks aukist um tæp 37%. Þá hefur sala vindlinga aukist um sex prósent en undir þann flokk falla sígarettur. Sömuleiðis hefur sala reyktóbaks aukist um þrjú prósent.

Fyrstu fimm mánuði ársins hefur sala neftóbaks aukist um tæp 37%. Þá hefur sala vindlinga aukist um sex prósent en undir þann flokk falla sígarettur. Sömuleiðis hefur sala reyktóbaks aukist um þrjú prósent. Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis, segist vilja taka þessum tölum með fyrirvara.

„Þessar nýju tölur hafa vakið athygli okkar en þó viljum við helst sjá tölur fyrir lengra tímabil áður en við förum að bregðast við. Þetta er þó úr takti við þróun síðustu ára þar sem reykingar hafa farið minnkandi,“ segir Viðar. 12