Hólmbert Aron Friðjónsson og félagar í skoska meistaraliðinu Celtic hafa fengið nýjan knattspyrnustjóra en hinn norski Ronny Deila samdi við félagið til eins árs í gær eftir að hafa stýrt liði Strömsgodset síðustu ár.
Hólmbert Aron Friðjónsson og félagar í skoska meistaraliðinu Celtic hafa fengið nýjan knattspyrnustjóra en hinn norski Ronny Deila samdi við félagið til eins árs í gær eftir að hafa stýrt liði Strömsgodset síðustu ár. Hólmbert varð löglegur með liðinu um áramótin eftir vistaskipti frá Fram en fékk fá tækifæri undir stjórn Neils Lennon, fráfarandi stjóra liðsins.