[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sigur Guðmundar Kjartanssonar í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem lauk um síðustu helgi virtist kom sumum á óvart, einkum þeim sem horfa á elo-stig sem nánast óbrigðulan mælikvarða.

Sigur Guðmundar Kjartanssonar í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem lauk um síðustu helgi virtist kom sumum á óvart, einkum þeim sem horfa á elo-stig sem nánast óbrigðulan mælikvarða. Þeir sem hafa verið að fylgjast með Guðmundi undanfarin misseri vita að hann má vera hagsýnni í ákvörðunum. Þar hefur hann enn verk að vinna en á Íslandsmótinu voru þessir þættir ekki vandamál. Guðmundur tefldi best allra og sigurinn var sanngjarn og hefði getað orðið stærri; í lokaumferðinni var hann peði yfir í endatafli og hafði allar forsendur til að halda áfram skákinni við Hjörvar Stein Grétarsson. En með jafntefli sló hann tvær flugur í einu höggi; varð Íslandsmeistari og samhliða datt inn áfangi að stórmeistaratitli. Lokastaðan var þessi:

1. Guðmundur Kjartansson 6 ½ v . (af 9) 2.-3. Héðinn Steingrímsson og Hannes Hlífar Stefánsson 5 ½ v. 4. – 5. Þröstur Þórhallsson og Henrik Danielsen 5 v. 6. Hjörvar Steinn Grétarsson 7. Helgi Áss Grétarsson 5 v. 8. – 9. Bragi Þorfinnsson og Einar Hjalti Jensson 3 ½ v. 10. Guðmundur Gíslason 2 v.

Henrik Danielsen tefldi betur en vinningatalan segir til um. Hannes og Héðinn reyna of oft að fá vinninga úr stöðum sem „tefla sig sjálfar“. Stundum gengur það upp; Einar Hjalti rataði í stöðu gegn Hannesi, sem Bent Larsen fékk upp gegn Jens Enevoldsen árið 1956 eins og „aðvífandi áhorfandi“ á hliðarlínunni var fljótur að benda á. Héðinn Steingrímsson reif sig upp um miðbik móts og átti góða möguleika á Íslandsmeistaratitlinum en tapaði fyrir Helga Áss í næstsíðustu umferð. Hjörvar Steinn virtist missa móðinn eftir góða byrjun.

Íslandsmeistaranum gekk sérlega vel með Hollensku vörnina, vann bæði Braga og Helga Áss. Sigurinn yfir Braga kom á besta tíma:

7. umferð:

Bragi Þorfinnsson – Guðmundur Kjartansson

Hollensk vörn

1. Rf3 f5 2. d3 Rc6 3. e4 e5 4. exf5 Rf6 5. d4 exd4 6. Rxd4 Rxd4 7. Dxd4 d5 8. Rc3 Bxf5 9. Bg5 Bxc2!

Guðmundur mætir hótun um langa hrókun – og eftir atvikum drottningarskák á e5 – með þessu bíræfna „peðsráni“.

10. Kd2?!

Ekki var auðvelt að finna góða leiki, t.d. 10. Bxf6 Dxf6! 11. Dxf6 gxf6 12. Rxd5 O-O-O! og hvíta staðan riðar til falls.

10. ... Bg6 11. He1 Kf7 12. Kc1 c6! 13. g4 Db6 14. Df4 Bb4!

Svartur er með hartnær unnið tafl eftir aðeins 14 leiki!

15. Bxf6 gxf6 16. He3 Hae8 17. Bd3 Hxe3 18. Bxg6 hxg6 19. fxe3 Dc5 20. Kc2 Dd6

Guðmundur lætur sér nægja betra endatafl peði yfir. Hann gat leikið 20. ... g5! 21. Dc7+ Kg6 með vinningsstöðu eða 21. Df3 Bxc3! 22. bxc3 Da3 o.s.frv.

21. h4 Dxf4 22. exf4 He8 23. Kd3 Bd6 24. Re2 He4 25. Hf1 c5 26. b3 b5 27. Rc3 Hd4 28. Kc2 a6 29. Re2 He4 30. Rc3 Hxf4 31. Hxf4 Bxf4 32. Rxd5 Be5 33. Kd3 Ke6 34. Re3 f5 35. gxf5 gxf5 36. a4 f4

( STÖÐUMYND )

37. Rg4?

Eftir þennan leik knýr Guðmundur fram sigur. Eina vonin var að skjóta inn 37. axb5 þar sem 37. ... fxe3 strandar á 38. bxa6 Bb8 39. Kxe3 og hvítur heldur jafntefli. En eftir 37. ... axb5 ætti svartur að vinna.

37. ... c4+! 38. bxc4 bxa4

Með frípeð sitt á hvorum vængnum er eftirleikurinn auðveldur.

39. Kc2 f3 40. h5 Bd4 41. h6 f2 42. Rxf2 Bxf2 43. Kb2 Kf7 44. Ka3 Kg6 45. Kxa4 Bb6 46. c5 Bd8 47. Kb4 Kxh6 48. Kc4 Kg6 49. Kd5 a5 50. c6 Bc7

- og Bragi gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is