Sjö sóttu um embætti prests í Dalvíkurprestakalli, með aðsetri á Möðruvöllum. Umsækjendurnir eru: Elín Salóme Guðmundsdóttir, Elvar Ingimundarson, Eva Björk Valdimarsdóttir, Karl V.
Sjö sóttu um embætti prests í Dalvíkurprestakalli, með aðsetri á Möðruvöllum. Umsækjendurnir eru: Elín Salóme Guðmundsdóttir, Elvar Ingimundarson, Eva Björk Valdimarsdóttir, Karl V. Matthíasson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Salvar Geir Guðgeirsson og Viðar Stefánsson. Frestur til að sækja um embættið rann út 3. júní. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Embættið verður veitt frá 1. júlí 2014, að því er segir í frétt á vef Hörgársveitar.