Arnar Már Guðjónsson
Arnar Már Guðjónsson
Einn leikur fór fram í fyrstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar ÍA tók á móti HK í kvöldsólinni á Akranesi. Arnar Már Guðjónsson kom Skaganum yfir í fyrri hálfleik og þannig var staðan í leikhléi.

Einn leikur fór fram í fyrstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar ÍA tók á móti HK í kvöldsólinni á Akranesi.

Arnar Már Guðjónsson kom Skaganum yfir í fyrri hálfleik og þannig var staðan í leikhléi. Þórður Þorsteinn Þórðarson gulltryggði sigur heimamanna með marki í þeim síðari, lokatölur 2:0. Skagamenn komust upp í þriðja sætið og hafa þar níu stig eftir fimm leiki. HK hefur stigi minna í fimmta sætinu. yrkill@mbl.is