Flutningur Fiskistofu Ég vil taka undir efasemdir Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokks, varðandi flutning Fiskistofu til Akureyrar. Mér skilst að flutningur stofnunarinnar einn og sér kosti 200 milljónir.

Flutningur Fiskistofu

Ég vil taka undir efasemdir Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokks, varðandi flutning Fiskistofu til Akureyrar. Mér skilst að flutningur stofnunarinnar einn og sér kosti 200 milljónir. Ekki kem ég auga á mikinn sparnað þar. Þá ber að nefna alla þá miklu röskun sem þessi flutningur Fiskistofu hefur fyrir alla hina mörgu tugi starfsmanna á stöðu og högum. Mér virðist að hér sé um fljótfærnislega og lítt ígrundaða ákvörðun að ræða. Það þarf nú að vera þannig með allar ákvarðanir sem við tökum í lífinu að þær þurfa að vera vel ígrundaðar og skynsamlegar. Þessi einföldu sannindi þurfa ráðamenn jafnan að hafa í huga ekki síður en almenningur.

Sigurður Guðjón Haraldsson.