Jónas Garðarsson
Jónas Garðarsson
Eftir Jónas Garðarsson: "Auðvitað er þessi myrkvaveröld ThorShip í hróplegu ósamræmi við fögur fyrirheit álveranna um „samfélagslega ábyrgð“"

Enn eina ferðina hefur ITF, Alþjóðaflutningaverkamannasambandið, þurft að hafa afskipti af drullumixi ThorShip í Hafnarfirði sem sér um álflutninga fyrir alþjóðlegu álrisana Alcoa á Reyðarfirði og Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Intership Geshifffartgeshallschaft, útgerð flutningaskipsins UTA frá Antígva og Barbúda, hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta í Þýskalandi en skipið hefur legið við kaja á Reyðarfirði frá því það var kyrrsett fyrir tæpum mánuði. UTA er átta þúsund tonna skip. Það átti að flytja ál til Rotterdam.

ITF þurfti í síðustu viku að grípa í taumana til þess að tryggja ellefu skipverjum samningsbundin laun. Ég sem fulltrúi ITF fór um borð 10. júlí síðastliðinn. Í áhöfn eru Rússar og Úkraínumenn. Þýskur banki tók að sér að greiða launin en Intership hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta vegna olíuskuldar. Væntanlega siglir dallurinn tómur til Þýskalands þar sem hann fer á uppboð.

Cargow BV í skúffu á Selhellu

Raunar er UTA á vegum Cargow BV sem mun geymt í skúffu ThorShip á Selhellu í Hafnarfirði en er skráð í Hollandi. Eigendur Cargow BV eru sómapiltarnir Karl Harðarson, forstjóri ThorShip, Bjarni Ármannsson, bankamaðurinn siðprúði, og Norðmaðurinn Øvind Sivertsen. Sýslumaðurinn á Eskifirði kyrrsetti UTA vegna olíuskuldar í Austurlöndum en þá höfðu sjö þúsund tonn af áli verið lestuð um borð í skipið sem átti að sigla til Rotterdam.

Í kranaviðtali yppti Karl Harðarson öxlum: „Hvorki Alcoa né hollenska félagið eru aðilar að málunum. Við erum eingöngu þolendur,“ sagði forstjórinn með grátstafinn í kverkunum og helst að skilja að hann hefði enga vitneskju af tilvist Cargow BV í skúffunni sinni.

ITF hefur ítrekað þurft að grípa í taumana vegna vangreiddra launa og illrar meðferðar á skipverjum á hungurlaunum á ryðkláfum sem eru engum til sóma. Álrisarnir sem þykjast axla „samfélagslega ábyrgð“ kjósa að vega að íslenskri sjómannastétt með því að skipta við siðblinda spekúlanta í ThorShip.

Af ryðkláf í Hafnarfirði

Frægt er þegar ryðkláfur var dreginn úr Straumsvík til Hafnarfjarðar þar sem hann var rústbarinn svo að jafnvel hávaði sem var frá dalli, sem verið var að mylja í brotajárn, drukknaði í látunum. Fréttablaðið skýrði frá því að gauragangurinn hefði haldið vöku fyrir Hafnfirðingum. Ég sem fulltrúi ITF þurfti eitt sinn að fara með handarbrotinn sjómann á sjúkrahús vegna þess að skipafélag ThorShip hafði neitað honum um læknismeðferð. Blessuðum manninum hafði verið vísað til skottulæknis í Hollandi og blöskraði íslenskum læknum meðhöndlunin sem hann hafði fengið.

Auðvitað er þessi myrkvaveröld í hróplegu ósamræmi við fögur fyrirheit álveranna. ThorShip nefnir ekki þessa gráu, skuggalegu veröld á heimasíðu sinni. Þeir segjast vera „snjallari“ og hafa öryggi og áreiðanleika í stafni. Öllu má nafn gefa en félagarnir á Selhellu eru snillingar í drullumixi svo sem dæmin sanna. Þeir og álrisarnir vega að öryggi þjóðarinnar með því að grafa undan íslenskri sjómannastétt.

Höfundur er framkvæmdastjóri Sjómannafélags Íslands og fulltrúi ITF á Íslandi.