Bandaríski trommuleikarinn Dave Weckl mun halda trommu-clinic í sal FÍH, Rauðagerði 27 í Reykjavík næstkomandi sunnudag, hinn 20. júlí, kl. 18.00. Weckl hefur mikla tæknilega getu á trommunum en hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1986.
Bandaríski trommuleikarinn Dave Weckl mun halda trommu-clinic í sal FÍH, Rauðagerði 27 í Reykjavík næstkomandi sunnudag, hinn 20. júlí, kl. 18.00. Weckl hefur mikla tæknilega getu á trommunum en hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1986. Oft er hann nefndur sem einn öflugasti jazz-fusion trommuleikari sögunnar og ættu tónlistaráhugamenn því ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara.