Þokki Meðlimir Grísalappalísu eru þekktir fyrir ansi skrautlega sviðsframkomu en þar fer Gunnar fremstur í flokki.
Þokki Meðlimir Grísalappalísu eru þekktir fyrir ansi skrautlega sviðsframkomu en þar fer Gunnar fremstur í flokki.
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Þetta er náttúrlega bara draumaverkefni. Þegar við stofnuðum bandið þá lögðum við upp með íslenska textasmíð auk þess sem við vildum ferðast um landið og spila fyrir landann.

Davíð Már Stefánsson

davidmar@mbl.is

„Þetta er náttúrlega bara draumaverkefni. Þegar við stofnuðum bandið þá lögðum við upp með íslenska textasmíð auk þess sem við vildum ferðast um landið og spila fyrir landann. Við höfum því lengi planað að keyra af stað um Ísland og nú er það loks orðið að veruleika,“ segir Gunnar Ragnarsson, annar tveggja söngvara sveitarinnar Grísalappalísu sem heldur um þessar mundir af stað í tónleikaferðalag um landið.

Fíflalæti á landsbyggðinni

Sveitin gaf nýverið út plötuna Rökrétt framhald og hóf tónleikaferðalagið á útgáfutónleikum.

„Tónleikaferðalagið byrjaði rosalega vel á miðvikudaginn á skemmtistaðnum Húrra í Reykjavík. Fólk keypti þar líka mikið af varningi sem kemur sér vel þegar kemur að því að eiga fyrir brauðinu á tónleikaferðalaginu. Annars erum við bara að leggja svolítið af stað út í óvissuna, maður vonar bara að fólk viti af öllum þessum tónleikum og mæti á svæðið. Við ætlum að vera duglegir að vera sýnilegir og munum reyna að vera með einhver fíflalæti í bæjarfélögunum til að vekja athygli á okkur og tónleikunum,“ segir hann en þess má geta að sveitin kemur fram á kaffihúsinu RúBen í Grundarfirði í kvöld. Gunnar kveðst mjög spenntur fyrir því að sinna landsbyggðinni.

„Maður getur bara spilað visst oft í Reykjavík auk þess sem þetta er skemmtileg leið til þess að kynnast fólki og stöðum úti á landi. Sumir af tónleikastöðunum sem við völdum hafa persónulega tengingu, við erum þó mjög spenntir fyrir þeim öllum. Ég er til að mynda mjög spenntur að sjá mætinguna á Vopnafirði á miðvikudaginn næstkomandi. Svo er líka spenningur í mönnum fyrir gigginu á Laugum í Sælingsdal á sunnudaginn. Þar er nokkurskonar tónlistarhótel sem ég hef unnið á. Ég vona að Dalabyggð láti sjá sig á tónleikunum,“ segir hann en um er að ræða útitónleika sem hefjast klukkan fjögur. Aðspurður segir Gunnar sveitina ætla að taka lög af nýju plötunni sem og þeirri fyrstu, Ali .

„Svo ætlum við líka að henda inn nokkrum Stuðmannalögum, bara hafa gaman af þessu,“ segir Gunnar sposkur og minnist á sveitaballastemningu í sömu andrá.

Með dj. flugvél og geimskipi

Steinunn Eldflaug Harðardóttir, betur þekkt sem dj. flugvél og geimskip, mun halda í ferðina með Grísalappalísu en hún gaf út plötuna Glamúr í geimnum í fyrra.

„Við höfum spilað mikið með dj. flugvél og geimskipi frá því að við byrjuðum með Grísalappalísu, við erum öll mjög góðir vinir. Það var aldrei spurning með hverjum við vildum túra. Við ætlum einmitt að reyna að taka lagið saman einhvern tíma á þessu ferðalagi. Það sem einkennir bæði böndin er að það er einhver sérstakur heimur á bakvið tónlistina sem áheyrendur geta tekið þátt í ef þeir vilja. Það sameinar okkur svolítið,“ segir Gunnar en hann kveðst ánægður með þá stemningu sem myndast á tónleikum sveitarinnar.

„Það er kominn svona kjarnahópur af fólki sem kemur aftur og aftur á tónleikana okkar og er ótrúlega mikið til í þetta,“ segir hann en Grísalappalísa vann einmitt til verðlauna sem besta tónleikasveit ársins 2013 að mati Reykjavík Grapevine. Þess skal getið að lokum að sveitin mun auk þess stoppa á Vagninum á Flateyri á laugardaginn, Gamla bauknum á Húsavík á þriðjudaginn, Gömlu símstöðinni á Egilsstöðum á fimmtudaginn, Seyðisfirði á föstudaginn eftir viku og svo lýkur ferðinni á Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 26. júlí.