Hlutabréf tryggingafélaganna Sjóvá , TM og VÍS hækkuðu öll í verði í Kauphöllinni í gær. Mest var hækkunin á bréfum TM, eða 2,74% , í 103 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréf tryggingafélaganna Sjóvá , TM og VÍS hækkuðu öll í verði í Kauphöllinni í gær. Mest var hækkunin á bréfum TM, eða 2,74% , í 103 milljóna króna viðskiptum. Hlutabréf VÍS hækkuðu um 2,55% í verði í 184 milljóna króna viðskiptum og loks fóru bréf Sjóvá upp um 1,98% í verði í 153 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréf HB Granda lækkuðu hins vegar um 2,33% í verði.