Rory McIlroy
Rory McIlroy
Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy leiðir eftir fyrsta hring opna breska meistaramótins í golfi sem fram fer á Hoylake-vellinum í Liverpool.

Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy leiðir eftir fyrsta hring opna breska meistaramótins í golfi sem fram fer á Hoylake-vellinum í Liverpool. Hann lék hringinn á sex höggum undir pari, höggi betur en Ítalinn Matteo Manassero sem lék hringinn á 67 höggum. Veðrið lék við kylfinga í gær en í dag verður skorið niður á mótinu og halda 72 efstu kylfingarnir áfram leik. Tiger Woods sýndi gamla takta í gær og lék á þremur höggum undir pari.

peturhreins@mbl.is