Öllum fyrirvörum var létt af raforkusölusamningi Landsvirkjunar og United Silicon hf. í gær. Landsvirkjun mun útvega rafmagn fyrir kísilverksmiðju sem United Silicon ætlar að reisa í Helguvík.

Öllum fyrirvörum var létt af raforkusölusamningi Landsvirkjunar og United Silicon hf. í gær. Landsvirkjun mun útvega rafmagn fyrir kísilverksmiðju sem United Silicon ætlar að reisa í Helguvík. Verksmiðjan mun nota 35 MW af afli og er gert ráð fyrir að hún hefji starfsemi á fyrri hluta ársins 2016.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að orkan sem Landsvirkjun ætlaði að afhenda United Silicon væri til. Samningurinn kallaði því ekki á frekari virkjanaframkvæmdir.

Framkvæmdir við byggingu fyrsta áfanga verksmiðjunnar eiga að hefjast í þessum mánuði. Magnús Garðarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri United Silicon hf. í Helguvík, sagði að 250-300 manns mundu vinna við framkvæmdirnar. Þegar fyrsti áfangi fer í gang munu vinna þar um 60 manns. 6