Seðlabankinn hefur veitt Icelandair Group heimild fyrir ný skuldabréf.
Seðlabankinn hefur veitt Icelandair Group heimild fyrir ný skuldabréf. — Morgunblaðið/Ernir
Skuldabréfaútgáfa Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að skoða möguleika á skuldabréfaútgáfu félagsins á Íslandi.

Skuldabréfaútgáfa

Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að skoða möguleika á skuldabréfaútgáfu félagsins á Íslandi. Með skuldabréfaútgáfunni er stefnt að því að auka fjölbreytni í fjármögnun félagsins og búa félagið undir fyrirhugaða fjárfestingu í nýjum flugvélum.

Seðlabanki Íslands hefur veitt félaginu heimild til þess að gefa út skuldabréf fyrir allt að sextíu milljónir evra, sem jafngildir um 9,3 milljörðum króna, og selja til innlendra fjárfesta fyrir íslenskar krónur.

Stjórnin á eftir að útfæra nákvæmlega skilmála skuldabréfanna. Í tilkynningu segir að félagið hafi náð samkomulagi við Íslandsbanka um að annast mögulega útgáfu og sölu skuldabréfanna.