Kristján Jónsson fæddist 1. janúar 1937. Hann lést 4. júlí 2014. Útför Kristjáns fór fram 19. júlí 2014.

Elsku pabbi, takk fyrir allt, verð Guði að eilífu þakklát fyrir að hafa átt þig að.

Sumir hverfa fljótt úr heimi hér

skrítið stundum hvernig lífið er,

eftir sitja margar minningar.

Þakklæti og trú.

Þegar eitthvað virðist þjaka mig

þarf ég bara að sitja og hugsa um þig,

þá er eins og losni úr læðingi

lausnir öllu við.

Þó ég fái ekki að snerta þig

veit ég samt að þú ert hér,

og ég veit að þú munt elska mig

geyma mig og gæta hjá þér.

Og þó ég fengi ekki að þekkja þig

þú virðist alltaf geta huggað mig,

það er eins og þú sért hér hjá mér

og leiðir mig um veg.

Og þegar tími minn á jörðu hér,

liðinn er þá er ég burtu fer,

þá ég veit að þú munt vísa veg

og taka á móti mér.

(Ingibjörg Gunnarsdóttir)

Kveðja,

Áslaug

Kristjánsdóttir.