Hlín Gunnlaugsdóttir
Hlín Gunnlaugsdóttir
Miðjumaðurinn reyndi hjá Breiðabliki, Hlín Gunnlaugsdóttir, mun ekki spila meira með liðinu á tímabilinu. Hlín er þó áfram samningsbundin félaginu. Þetta staðfesti Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks, við Morgunblaðið í gær.

Miðjumaðurinn reyndi hjá Breiðabliki, Hlín Gunnlaugsdóttir, mun ekki spila meira með liðinu á tímabilinu. Hlín er þó áfram samningsbundin félaginu. Þetta staðfesti Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks, við Morgunblaðið í gær. Hlín hefur samtals spilað 155 leiki með Breiðabliki í deild og bikar og skorað í þeim 15 mörk. Þar af 13 leiki í ár þar sem hún hefur skorað tvö mörk. Ljóst er að um mikinn missi fyrir Breiðablik er að ræða en Hlín á að baki fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið viðloðandi A-landsliðið undanfarin ár. peturhreins@mbl.is