Höfn Ætla má að margir séu á leiðinni til Vestmannaeyja um helgina.
Höfn Ætla má að margir séu á leiðinni til Vestmannaeyja um helgina. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eitthvað hefur borið á því undanfarið að ökumenn hafi farið of hratt um Suðurlandsveg á leið sinni austur að Landeyjahöfn.

Eitthvað hefur borið á því undanfarið að ökumenn hafi farið of hratt um Suðurlandsveg á leið sinni austur að Landeyjahöfn. Samgöngustofa minnir því á að þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjahafnar nú um helgina þurfa að gera ráð fyrir tveggja klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð og getur þá jafnvel þurft að gera ráð fyrir lengri tíma. pfe@mbl.is