Drulla Skrautlegir búningar fylgja hátíðinni eins og sjá má á þessari mynd.
Drulla Skrautlegir búningar fylgja hátíðinni eins og sjá má á þessari mynd. — Ljósmynd/Mýrarboltinn
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Svonefnt Evrópumót í mýrarbolta verður haldið níunda árið í röð á eina viðurkennda keppnisvelli landsins í Tunguskógi í Skutulsfirði. „Mýrarbolti er íþrótt sem fundin var upp seint á síðustu öld.

Svonefnt Evrópumót í mýrarbolta verður haldið níunda árið í röð á eina viðurkennda keppnisvelli landsins í Tunguskógi í Skutulsfirði.

„Mýrarbolti er íþrótt sem fundin var upp seint á síðustu öld. Hún er svipuð og hefðbundinn fótbolti en keppnin fer fram á erfiðari undirlagi. Mýrarboltinn snýst samt ekki einungis um fótbolta. Það hefur skapast ákveðin hefð hjá liðunum sem felst í því að keppast í innkomu. Þá mæta liðin í hinu ótrúlegustu búningum og eins og einn af okkur fullyrti þá er þetta í raun og veru ein stærsta tískusýning landsins,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, sem hefur titilinn drullusokkur Mýrarboltans.

Mótið hefst í kvöld á því að DJ Matti og DJ Orri munu troða upp í Húsinu klukkan 23. Föstudagurinn hefst á skráningu í skráningarhöllinni í Edinborg en þar verður gengið frá skráningu og armbönd og keppnisgögn afhent. Um kvöldið munu hljómsveitin Úlfur Úlfur, DJ Matti og DJ Orri leika fyrir gesti.

Á laugardagsmorgni hefst keppnin í mýrarboltanum en búast má við að leikið verði fram eftir degi.

Ekki aðeins íþróttir

Ekki eru það aðeins íþróttir sem sjá um að fylla upp í dagskrána á laugardeginum en Kiriyama Familiy, Erpur og Sesar A, Emmsjé Gauti, Agent Fresco og fleiri munu sjá til þess að fólk skemmti sér vel um nóttina víðsvegar um bæinn.

Leikar hefjast á sunnudeginum klukkan 10 en þeim lýkur klukkan 16. Um kvöldið verður haldin heljarinnar brenna og verðlaunaafhending en stíft djamm tekur við að því loknu.

„Veðurspáin er okkur hliðholl svo við eigum von á talsverðum fjölda. Sumarið hefur ekki farið vel með marga hvað veður varðar svo almenn skynsemi segir okkur að fólk eigi eftir að elta sólina hingað. Við vonum því bara að stemningin verði góð eins og hún er alltaf hér,“ segir Jóhann. pfe@mbl.is