Von er á þriðju pólitísku skipuninni í sendiherrastarf, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mun sú staða koma í hlut Samfylkingarinnar.

Von er á þriðju pólitísku skipuninni í sendiherrastarf, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mun sú staða koma í hlut Samfylkingarinnar. Forysta flokksins hefur, samkvæmt upplýsingum blaðsins, ekki gert tillögu um neinn sérstakan kandídat í stöðuna við utanríkisráðherra og að sögn formanns Samfylkingarinnar hefur slíkt ekki verið rætt í forystunni.

Utanríkisráðherra hefur skipað tvo nýja sendiherra frá 1. janúar 2015, þá Geir H. Haarde og Árna Þór Sigurðsson. Stjórnmálamaður hefur ekki verið skipaður í starf sendiherra undanfarin sex ár. 6