Enn ein alslemman. N-Allir
Norður | |
♠ÁG2 | |
♥K103 | |
♦KG10 | |
♣10975 |
Vestur | Austur |
♠-- | ♠109 |
♥7652 | ♥D84 |
♦Á973 | ♦D86542 |
♣D8643 | ♣K2 |
Suður | |
♠KD876543 | |
♥ÁG9 | |
♦-- | |
♣ÁG |
Suður spilar 7♠.
Þriðja daginn í röð spilar sagnhafi Morgunblaðsins 7♠, en í þetta sinn er alslemman ekki frá úrslitum Spingold, heldur íslenskum bikarleik milli sveita Halldórs Svanbergssonar og Skjanna. Leikurinn var spilaður á þriðjudagskvöld og vann Halldór 85-52.
Bæði NS-pörin byrjuðu á Standard-nótum með opnun á 1♣ í norður, rólegu svari á 1♠ og endursögn á grandi (12-14). Suður krafði í geim með 2♦ (tvíhleypan) og norður tók undir spaðann. Hvað gera Sunnlendingar nú?
Halldór sveitarforingi sagði 3♥, fékk 3G frá makker og lét þá 6♠ duga. Viturlegt og árangursríkt: 1430 NS. Skjanninn á hinu borðinu var nýbúinn að læra „exclusion“ ásaspurninguna og stökk í 5♦ til að leita eftir trompásnum. Sagði svo sjö þegar norður gekkst við ásnum.
Ekkert nema ♦Á út bjargar skjannahvítu skinni sagnhafa, en vestur vissi betur en að vaða út tómið og kom út með hjarta. Einn niður.