Hús Leikfélags Akureyrar.
Hús Leikfélags Akureyrar.
Bæjarráð Akureyrar samþykkti í gær 7,5 milljóna króna styrk til Menningarfélags Akureyrar í þeim tilgangi að tryggja samfellu í starfsemi Leikfélags Akureyrar. Erindið barst frá varaformanni stjórnar leikfélagsins þar sem óskað var eftir styrknum.

Bæjarráð Akureyrar samþykkti í gær 7,5 milljóna króna styrk til Menningarfélags Akureyrar í þeim tilgangi að tryggja samfellu í starfsemi Leikfélags Akureyrar. Erindið barst frá varaformanni stjórnar leikfélagsins þar sem óskað var eftir styrknum. Stjórn LA sendi frá sér yfirlýsingu í apríl þar sem sagði að ekki væri hægt að halda úti starfsemi leikfélagsins nema til kæmi leiðrétting á opinberum framlögum. Þá var öllu starfsfólki leikhússins sagt upp í lok apríl.

Tillagan um að veita styrkinn var samþykkt með meirihluta atkvæða í bæjarráði, segir á mbl.is.