Höfn Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn. Þar eru aðstæður oft erfiðar.
Höfn Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn. Þar eru aðstæður oft erfiðar. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samið hefur við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S um hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju sem á að leysa Herjólf af hólmi. Á hönnuninni að ljúka í febrúarlok á næsta ári en reiknað er með að smíði ferjunnar ljúki síðla árs 2016.

Samið hefur við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S um hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju sem á að leysa Herjólf af hólmi. Á hönnuninni að ljúka í febrúarlok á næsta ári en reiknað er með að smíði ferjunnar ljúki síðla árs 2016.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að Hreinn Haraldsson vegamálastjóri skrifaði undir samninginn við norska fyrirtækið í vikunni. Samningsupphæðin er rúmlega 800 þúsund evrur eða um 124 milljónir króna.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra heimilaði í febrúar á þessu ári að auglýsa útboð um hönnun ferjunnar. Um það sá starfshópur um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Ríkiskaup önnuðust auglýsingu útboðsins sem fór fram á Evrópska efnahagssvæðinu.

Eitt gilt tilboð

Þrjú tilboð bárust en tvö þeirra reyndust ógild og því þriðja var hafnað þar sem það var langt yfir kostnaðaráætlun.

Að tillögu ráðgjafa starfshópsins, Jóhannesar Jóhannessonar skipaverkfræðings, voru teknar upp samningaviðræður við norska fyrirtækið Polarkonsult sem átti eina gilda tilboðið í hönnun ferjunnar. Samningurinn sem nú hefur verið undirritaður byggist á endurnýjuðu tilboði Polarkonsult og segir Vegagerðin að samningsupphæðin sé svipuð og upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Undirverktaki er danska fyrirtækið Force Technology.

Upphaflega var þó gert ráð fyrir að hönnun lyki í nóvember í ár en vegna tafa verður það ekki fyrr en í febrúar á næsta ári. Reikna megi með að smíði skipsins verði boðin út og verkinu lokið síðla árs 2016.

Erfiðar aðstæður

Á heimasíðu Polarkonsult segir, að aðstæður í Landeyjahöfn séu erfiðar vegna blöndu af löngum öldum af hafi og minni öldum af strönd og að auki sé sterkur hafstraumur í mynni hafnarinnar. Dýpið í höfninni sé aðeins 4,5 metrar og ferjan þurfi að geta athafnað sig í allt að 3,5 metra ölduhæð. Því sé nauðsynlegt að ferjan risti grunnt og auðvelt verði að stýra henni.

Skipið verður um það bil 65 metra langt og mun taka um 390 farþega auk bíla.