— Ljósmynd/Rubén Plaza
Alfreð Finnbogason átti góða frumraun með spænska liðinu Real Sociedad í gærkvöld þegar hann lék fyrsta alvöru leik sinn fyrir félagið eftir að hann kom frá Heerenveen í sumar. Alfreð lék allan leikinn í 2:0-sigri á Aberdeen frá Skotlandi í 3.

Alfreð Finnbogason átti góða frumraun með spænska liðinu Real Sociedad í gærkvöld þegar hann lék fyrsta alvöru leik sinn fyrir félagið eftir að hann kom frá Heerenveen í sumar. Alfreð lék allan leikinn í 2:0-sigri á Aberdeen frá Skotlandi í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu en liðin mætast aftur í Skotlandi eftir viku.

Alfreð átti stóran þátt í fyrra marki leiksins en eftir að skot hans var varið náði David Zurutuza frákastinu og skoraði. Sergio Canales bætti svo við öðru marki eftir að hafa komið inná sem varamaður. sindris@mbl.is