— Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Þetta er fín þjálfun,“ segir Bragi Reynisson, sem hjólaði við þriðja mann upp á Úlfarsfellið í gærkvöldi til að komast í form. Ætlun Braga og samstarfélaga hjá Saga film er að hjóla Laugaveginn svonefnda um helgina, sem er 50 km leið.

„Þetta er fín þjálfun,“ segir Bragi Reynisson, sem hjólaði við þriðja mann upp á Úlfarsfellið í gærkvöldi til að komast í form. Ætlun Braga og samstarfélaga hjá Saga film er að hjóla Laugaveginn svonefnda um helgina, sem er 50 km leið. „Þetta verður auðvitað strembið en við ætlum þetta samt á einum degi,“ segir Bragi sem er lengst til hægri á myndini. Með honum eru Arnbjörg Hafliðadóttir og Pétur Óli Hafliðason úr Laugavegshópi Saga film. sbs@mbl.is