Humaima Malik
Humaima Malik
Humaima Malik er með hærri laun en nokkur önnur leikkona í heimalandinu, Pakistan, að sögn BBC. En hún hefur samt áhyggjur af því að landar hennar muni ekki allir sætta sig við hana í nýjasta hlutverkinu.

Humaima Malik er með hærri laun en nokkur önnur leikkona í heimalandinu, Pakistan, að sögn BBC. En hún hefur samt áhyggjur af því að landar hennar muni ekki allir sætta sig við hana í nýjasta hlutverkinu. Þar leikur hún í indverskri mynd á móti miklu goði í Bollywood, Emraan Hashmi – og þau kyssast.

Pakistan er íhaldsamt ríki og þar til nýlega voru allir kossar klipptir út úr myndum sem þar voru sýndar. En margar pakistanskar leikkonur hafa ekki staðist freistingar stóru grannþjóðarinnar sem hefur háð nokkrar styrjaldir við Pakistana. Pakistanar eru ekki ánægðir og finnst að þær eigi frekar að fá hlutverk í kvikmyndaverum borgarinnar Lahore í Pakistan sem stundum er nefnd Lollywood.

Önnur mikil stjarna, Veena Malik, olli írafári þegar mynd af henni í ögrandi stellingum birtist á forsíðu karlatímarits í Indlandi. Það eina sem hún „klæddist“ var stórt tattú á öðrum framhandleggnum, stafirnir ISI. Þeir standa fyrir hina alræmdu og voldugu leyniþjónustu Pakistans sem oft er sögð stýra landinu.

En nýlega sást Veena Malik á leið í viðtal við BBC í London, klædd múslímabúrku sem hylur allan líkamann. Ef til vill var hún að sýna iðrun. kjon@mbl.is