Óskar Williams hlaut Óskarsverðlaunin árið 1998 fyrir leik sinn í Good Will Hunting. Hér sést hann bregða á leik með verðlaunagripinn.
Óskar Williams hlaut Óskarsverðlaunin árið 1998 fyrir leik sinn í Good Will Hunting. Hér sést hann bregða á leik með verðlaunagripinn. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Hann kom inn í líf okkar sem geimvera en undir lokin hafði hann snert á öllum flötum mannsandans,“ segir í yfirlýsingu forsetans, sem minntist Williams einnig á samskiptavefnum Twitter.

Af stjörnu

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Bandaríski leikarinn og grínistinn Robin Williams fannst látinn á heimili sínu í Tiburon í Kaliforníu í fyrradag, 63 ára að aldri. Hann svipti sig lífi. Williams glímdi við þunglyndi og geðhvarfasýki og mun hafa verið mjög veikur síðustu dagana fyrir andlátið. Hann glímdi einnig við áfengis- og kókaínfíkn og fór oftar en einu sinni í meðferð við henni, nú síðast í júlí.

Williams var einn hæfileikaríkasti gamanleikari og uppistandari Bandaríkjanna og reyndi auk þess fyrir sér í alvarlegum kvikmyndahlutverkum með góðum árangri, m.a. í kvikmyndinni Good Will Hunting (1997) þar sem hann lék sálfræðing og hlaut Óskarsverðlaun fyrir árið 1998 sem besti leikari í aukahlutverki. Hann lék í yfir 100 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á ferli sínum, auk þess að talsetja teiknimyndir með eftirminnilegum hætti, m.a. Aladdin (1992) þar sem hann fór á kostum í hlutverki andans í lampanum.

Williams vakti fyrst athygli í heimalandi sínu fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Mork and Mindy sem sýndir voru á árunum 1978–82. Í þeim fór hann mikinn í hlutverki geimveru frá plánetunni Ork sem send var til jarðar að kynna sér mannfólkið. Hann sló í gegn á hvíta tjaldinu í hlutverki afar fjörugs og uppreisnargjarns plötusnúðar í Víetnamstríðinu í kvikmyndinni Good Morning, Vietnam (1987) og var þá flestum ljóst að stjarna væri fædd. Leitun var að öðrum eins orkubolta og Williams og hann var mikill grínspunameistari, eins og sást hvað best á sjónvarpsviðtölum við hann þar sem spyrlar horfðu agndofa á hann fara hamförum, vaða úr einni persónu í aðra á miklum hraða og herma listavel eftir þekktu fólki.

Ótalmargar kvikmyndir væri hægt að nefna sem Williams brilleraði í: Mrs. Doubtfire (1993) þar sem hann lék fráskilinn mann sem ákvað að dulbúast sem roskin barnfóstra til að geta varið tíma með börnunum sínum, Dead Poets Society (1989), The Fisher King (1991), Awakenings (1990), Insomnia (2002) , The Birdcage (1996) og þannig mætti áfram telja. Þó að Williams hafi tekið að sér mörg alvarleg hlutverk verður hans þó fyrst og fremst minnst sem gamanleikara og ákaflega hæfileikaríks og bráðfyndins uppistandara, eins þess færasta sem Bandaríkin hafa alið.

Samúðarkveðjur til fjölskyldu Williams og hlý minningarorð hafa undanfarna tvo daga streymt frá vinum hans, samstarfsmönnum og öðrum sem til hans þekktu, m.a. kvikmyndaleikstjóranum Steven Spielberg, sem segir Williams hafa verið mikinn grínsnilling og líkir snilligáfunni við þrumuveður, svo mögnuð hafi hún verið. Þá sendi Bandaríkjaforseti, Barack Obama, frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Williams hafi verið útvarpsmaður, læknir, andi, barnfóstra, forseti, prófessor, Pétur Pan og allt þar á milli og er þar vísað í þau fjölmörgu og ólíku hlutverk sem Williams tók að sér á hvíta tjaldinu. „Hann kom inn í líf okkar sem geimvera en undir lokin hafði hann snert á öllum flötum mannsandans,“ segir í yfirlýsingu forsetans sem minntist Williams einnig á samskiptavefnum Twitter.

Öllum þeim sem minnst hafa Williams ber saman um að hann hafi ekki aðeins verið mikill hæfileikamaður og grínsnillingur heldur einnig hjartahlýr og mikill mannvinur. Dapur trúður sem glímdi við erfið veikindi sem báru hann ofurliði á endanum. Trúður sem átti erfitt með að fella grímuna, ef marka má orð vinkonu Williams, Jamie Masada, stofnanda og framkvæmdastjóra uppistandsklúbbakeðjunnar Laugh Factory. Dagblaðið LA Times hefur eftir henni að hún hafi þekkt hann í 35 ár en þó aldrei þekkt hann í raun. „Hann var alltaf í hlutverki - maður sá aldrei hinn raunverulega Robin,“ segir Masada.