Flugvél lenti harkalega á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ í gærkvöld en engin slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum mbl.is. Greint var frá atvikinu á fréttasíðu bæjarblaðsins Mosfellings á Facebook.

Þá nauðlenti lítil flugvél einnig á Reykjavíkurflugvelli í gær vegna vélarbilunar. Engin slys urðu heldur á fólki þar.
Þriðja flugvélin nauðlenti við Hveragerði í gær en flugmanni tókst að lenda vélinni á hjólunum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Lítið tjón varð á henni og enginn slasaðist.