Upplýsingastríðið. Fyrsta grein.

Upplýsingastríðið. Fyrsta grein. V-AV

Norður
53
Á76
ÁDG975
107

Vestur Austur
K1042 G98
10954 KD3
1064 K8
85 ÁG932

Suður
ÁD76
G82
32
KD64

Suður spilar 3G.

„Þýðir ekkert sérstakt,“ hvíslaði bandaríska konan Kerry Sanborn í kínverskt norðureyrað um leið og hún lagði passmiðann á borðið. Sanborn sat með hundana í vestur, en skermfélagi hennar í norður var Ran Jingrong. Staður og stund: Las Vegas, Wagar-úrslitaleikur China Red og Lynn Baker.

Þetta eyrnahvísl var partur af stærri sögu. Hinum megin þils deildu þær kjörum, Irina Levitina í austur og Wang Wenfei í suður. Levitina doblaði opnun norðurs á 1 og Wenfei redoblaði. Það var þá sem Sonborn veifaði áðurnefndu passi og Jingrong renndi sagnbakkanum undir þilið yfir á hinn borðsendann. Levitina tók út í 2, suður beið átekta með passi, norður sagði 2 og suður 3G. Laufáttan út.

Á þessum tímapunkti dró Levitina upp penna og skrifaði skilaboð til suðurs: „Passið neitar venjulega hálit.“ Hefst svo spilamennskan: Levitina drepur á Á, spilar K (á slaginn) og heldur áfram með D. (Framhald á morgun.)