Bauhaus hefur í samráði við Neyt-endastofu ákveðið að innkalla upp-blásna heita potta af gerðinni Mspa – Oriental Recreational.

Bauhaus hefur í samráði við Neyt-endastofu ákveðið að innkalla upp-blásna heita potta af gerðinni Mspa – Oriental Recreational. Ástæðan er sú að alvarleg hætta getur skapast við notkun pottanna, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá Bauhaus. Tegundirnar sem Bauhaus innkallar eru allar gerðir af uppblásnum pottum sem verslunin hefur selt frá maí 2012 til dagsins í dag, þ.e. Silver cloud B-110, Square pearl B-090 og Black pearl.

Hægt er að skila vörunum í verslun Bauhaus með framvísun kvittunar. Einnig er hægt að hafa samband við Bauhaus í síma 515-0800 eða info@bauhaus.is.