Föndur Á síðunni má m.a. finna hugmyndir að því hvernig endurnýta má áldósir á skemmtilegan máta.
Föndur Á síðunni má m.a. finna hugmyndir að því hvernig endurnýta má áldósir á skemmtilegan máta.
Creatingreallyawesomefreethings.com er vefsíða Jamie Smith Dorobek, sem er mikil áhugamanneskja um svokölluð gerðu-það-sjálf verkefni, eða DIY eins og það er skammstafað á ensku.

Creatingreallyawesomefreethings.com er vefsíða Jamie Smith Dorobek, sem er mikil áhugamanneskja um svokölluð gerðu-það-sjálf verkefni, eða DIY eins og það er skammstafað á ensku. Hún leggur áherslu á að föndrið kosti sem allra minnst og notar alls konar hráefni sem fellur til á venjulegu heimili, s.s. gamla muni og afgangsmálningu.

Vefsíðan er afar litrík og þar er að finna fjöldann allan af myndum af margskonar verkefnum þar sem notaðir hlutir fá nýtt líf. Hægt er að fletta í gegnum færslur Jamie í tímaröð eða velja milli flokka, s.s. árstíðabundin verkefni. Einn skemmtilegasti flokkurinn er sá sem Jamie kallar Round Ups en þar hefur hún safnað hugmyndum um ákveðin verkefni saman, t.d. 19 leiðir til að endurnýta barnarúm og 28 hugmyndir að öðruvísi gestabókum.