Í eldlínunni Aníta Hinriksdóttir keppir í dag í undanrásum í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum.
Í eldlínunni Aníta Hinriksdóttir keppir í dag í undanrásum í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
EM í frjálsum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is Aníta Hinriksdóttir hefur í dag keppni á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Zürich þegar hún keppir í undanrásum 800 metra hlaupsins klukkan rúmlega 10.

EM í frjálsum

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

thorkell@mbl.is

Aníta Hinriksdóttir hefur í dag keppni á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Zürich þegar hún keppir í undanrásum 800 metra hlaupsins klukkan rúmlega 10.

Aníta hljóp 400 metra hlaup í bikarkeppni frjálsíþróttasambandsins á Laugardalsvelli um helgina, sem henni fannst fín upphitun fyrir 800 metra hlaupið í Zürich. „Þetta gefur svona ákveðna tilfinningu að hlaupa 400 metra hlaup og bara skemmtilegt. Þannig að þetta var bara fínt,“ sagði Aníta þegar Morgunblaðið spjallaði við hana í Laugardalnum um helgina.

Aníta segist spennt fyrir EM í Zürich og að það sé fínt að fara á EM svona stuttu eftir HM ungmenna í Eugene í Bandaríkjunum þar sem hún keppti til úrslita í 800 metra hlaupi í síðasta mánuði. „Jú, ég er bara sátt með það. Ég er bara jákvæð fyrir þessu,“ sagði Aníta.

Verður góð reynsla

„Þetta verður bara góð reynsla fyrir mig. Svo veit ég að við erum mjög jafnar margar, þannig þetta verður gott tækifæri til að æfa sig og vonandi næ ég bara góðu hlaupi og fínum tíma,“ sagði Aníta um Evrópumótið í frjálsíþróttum sem er framundan í Sviss.

Aníta er ein fimm Íslendinga sem keppa á EM, spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir reyndi fyrir sér í gær og Hafdís Sigurðardóttir í langstökki. Hafdís keppir líka í 200 metra hlaupi á EM, en fjallað erum árangur Ásdísar og Hafdísar á EM í gær á síðu 1 í íþróttablaðinu í dag. Guðmundur Sverrisson mun svo keppa í spjótkasti á EM og Kári Steinn Karlsson í maraþoni.

Aníta segir gott að vera hluti af liði. „Við höfum nú yfirleitt verið nokkur sem höfum farið á þessu síðustu mót sem ég hef keppt á erlendis. Það er auðvitað alltaf skemmtilegra eftir því sem það eru fleiri frá Íslandi,“ sagði Aníta Hinriksdóttir.

Aníta Hinriksdóttir
» Aníta er 18 ára gömul og varð varð heims- og Evrópumeistari í 800 metra hlaupi ungmenna á síðasta ári.
» Aníta á Íslandsmetið í 800 metra hlaupi, 2.00,49 mín. sem hún setti í Mannheim á síðasta ári.
» Aníta var á síðasta ári útnefnd vonarstjarna evrópskra frjálsíþrótta í kvennaflokki