Guðjón Breiðfjörð Ólafsson fæddist á Patreksfirði 29. apríl 1952. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 1. ágúst 2014.

Foreldrar Guðjóns voru Jóhanna Björg Thoroddsen Ingimundardóttir, fædd í Gerði, V-Barð., 10. janúar 1921, látin 27. júlí 2006, og Ólafur Breiðfjörð Þórarinsson, fæddur í Reykjavík 11. október 1916, látinn 26. janúar 1974.

Guðjón átti fjögur systkini, var hann næstyngstur. Þau eru: Þóra Friðrika, fædd 29. apríl 1947, eiginmaður Sigvaldi Sigurjónsson, Kristbjörg, fædd 25. september 1948, eiginmaður Halldór Kristján Gíslason, fæddur 12. desember 1945, Þórarinn Kristján, fæddur 2. desember 1950, eiginkona Arnhildur Ásdís Kolbeins, fædd 1. febrúar 1962. Guðmundína Sigurrós, fædd 6. janúar 1954, eiginmaður Guðmundur Bjarnason, fæddur 22. júní 1953.

Guðjón kvæntist 21. apríl 1973 eftirlifandi eiginkonu sinni Finnbjörgu Skaftadóttur þroskaþjálfa, deildarstjóra Dagþjálfunar á Hrafnistu. Finnbjörg er fædd 24. ágúst 1952 í Sandgerði, dóttir Ernu Ragnheiðar Hvanndal Hannesdóttur, f. 30. ágúst 1933, og Skafta Jóhannssonar, f. 22. júlí 1931, d. 25. desember 2006. Guðjón og Finnbjörg áttu heimili lengst af í Holtsbúð í Garðabæ en síðan í Brekkubyggð 31 í Garðabæ.

Dætur þeirra eru: a) Erna Rós leikskólastjóri, fædd 25. desember 1969, fósturdóttir Guðjóns, faðir hennar er Ingvar Kristinsson, f. 1952. Eiginmaður Ernu Rósar er Hörður Óskarsson, vélfræðingur og framhaldsskólakennari, fæddur 18. maí 1964, börn þeirra eru: Arnór Orri, fæddur 1986, sonur Harðar frá fyrra hjónabandi. Arnór á þrjú börn og sambýliskonu, tvíburabræðurnir Dagur og Magni, fæddir 1995, og Arnheiður Björk, fædd 2001. Þau eru búsett á Akureyri.

b) Ólöf Aldís Breiðfjörð, fædd 6. maí 1973, látin 12. ágúst 2004, sonur hennar Víkingur Glói, fæddur 2002. Barnsfaðir Grétar Páll Bjarnason prentari, þeir feðgar eru búsettir í Noregi.

c) Guðrún Karólína hjúkrunarfræðinemi, fædd 13. desember 1977. Eiginmaður Birgir Már Guðmundsson, stjórnmála- og hagfræðingur, fæddur 25. júní 1976. Börn þeirra eru: Birta, dóttir Birgis af fyrra sambandi, fædd 1997, Guðjón Einar, fæddur 1997, sonur Guðrúnar Karólínu, faðir Leon Einar Pétursson, Jóhann Örn, fæddur 1998, sonur Guðrúnar Karólínu, faðir Magnús Örn Jóhannsson. Saman eiga þau hjónin þrjú börn, Brimi Snæ, fæddur 2003, Finnbjörgu Auði, fædd 2005, og Aldísi Unu, fædd 2011. Þau eru búsett í Garðabæ.

d) Tinna Breiðfjörð, kennslufræðingur og mastersnemi, fædd 12. júní 1982, eiginmaður Gunnar Þór Bergsson bifvélavirki, fæddur 30. maí 1982. Þau eru búsett í Danmörku.

Guðjón gekk í barnaskóla á Patreksfirði. Hann flutti ásamt fjölskyldu sinni í Kópavog árið 1963. Hann hóf nám í Iðnskólanum í Reykjavík og lauk sveins- og meistaraprófsnámi í bifvélavirkjun og starfaði við þá iðn allan sinn starfsferil. Hann rak sitt eigið bifreiðaverkstæði í nokkur ár en hóf störf sem þjónustufulltrúi hjá VÍS árið1990.

Útför Guðjóns fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 13. ágúst, kl. 13.

Elsku pabbi, mikið sem það var nú gaman að fara með þér í allar ferðirnar sem ég fékk að fara með þér hér í denn, í Þórsmörk, Landmannalaugar og fleiri slíkar ferðir þegar þú varst að keyra rútur. Þetta voru ánægjulegar og skemmtilegar ferðir sem ég fékk að fara með þér, smá stelpuskott. Alltaf varst þú tilbúinn að leyfa mér að fara með þér og fékk ég mikið út úr þessum ferðum, ekki síst samveru okkar.

Þú hefur einhvern veginn alltaf verið til staðar með þitt stóra og glaða hjarta sem var fullt af kærleika og þú gafst öllum sem á vegi þínum urðu í lífinu. Takk fyrir að vera alltaf hvetjandi og styðjandi allt mitt líf eftir að þú komst inn í það þegar ég var um tveggja ára. Takk fyrir að segja álit þitt á því í hverju ég ætti að fara eða hvernig ég liti út þegar ég leitaði eftir áliti þínu. Ég gat alltaf treyst því að þú segðir satt og værir heiðarlegur, það var svo gott og ég tók mark á þér enda varst þú smekkmaður.

Það voru ógleymanlegar stundir þegar börnin mín fæddust. Þig munaði ekki um að keyra norður til Akureyrar til að koma og sjá afagullmolana þína. Það þurfti að horfa upp til þín því þú varst í skýjunum og það sem einkenndi þig var þessi sanna gleði sem skein af þér og allt andlit þitt ljómaði af gleði á slíkum stundum. Og stoltið, maður minn, það leyndi sér ekki enda hafa börnin mín átt gríðarlega góðar stundir með þér, elsku pabbi minn, hvort heldur sem var í veiði, í sumarbústaðnum eða á hliðarlínunni á fótboltavellinum.

Síðasta stundin sem ég átti með þér var sérlega ljúf og góð. Þú hafðir fyrir því með gleði að rífa þig upp eldsnemma á laugardagsmorgni til að ná í okkur út á flugvöll. Það sem þú hafðir gaman að heyra frá ferðinni okkar Harðar og gleðjast með okkur er ómetanleg minning í minningarbankanum um þig. Þú spurðir okkur spjörunum úr. Hvað við hefðum gert og séð í ferðinni, hvort við hefðum séð þetta eða hitt. Þegar ég faðmaði þig og kyssti og sagði þér hve undur vænt mér þætti um þig áður en við lögðum af stað norður vissi ég sem betur fer ekki að það yrði í síðasta sinn sem ég ætti eftir að faðma þig, pabbi minn. Ég veit og trúi því að nú hefur þú bæst í hóp verndarengla minna og ég veit líka að þú munt vernda börnin mín og passa þau eins vel og þú getur.

Það er svo sárt að kveðja þig, pabbi minn. Ég skal halda áfram að taka tvisvar í hurðarhúninn til að vera viss um að húsið sé læst og loka gluggunum eins og á að gera.

Elsku pabbi, takk fyrir að vera þú og takk fyrir allt það sem þú hefur gefið mér og mínum.

Þín dóttir,

Erna Rós.

Elsku heimsins besti pabbi. Ég veit að minningargreinar eiga að vera minningar settar í orð. En það eru bara ekki nógu sterk orð til að lýsa þér og því hvað þú hefur gert fyrir mig. Ég er ekki ennþá búin að sætta mig við að þurfa að minnast þín á þennan máta, ég talaði við þig bara fyrir nokkrum dögum. Það var ekkert sem gaf til kynna að það yrði í seinasta skiptið. Ég vil samt að heimurinn viti hvað hann hefur misst, af hverju jörðin ætti að hætta að snúast og ekkert ætti að vera hið sama aftur. Því að mikilvægasta manneskjan er ekki í honum lengur.

Þegar það er sagt vil ég deila með ykkur hversu falleg persóna pabbi minn var og hversu ótrúlega góður pabbi hann verður mér alltaf. „Ótrúlega“ því það er ótrúlegt. En samt svo satt að það er sárt.

Ég vil minnast morgnanna er ég var barn og þú vaktir mig á þinn hlýja og blíða máta. Hvernig þú straukst á mér bakið með stórri hlýrri hendi þinni þangað til ég vaknaði. Þetta lýsir öllu því sem þú gerðir fyrir mig, örygginu og ástinni sem þú umvafðir mig með. Þú varst einstakur pabbi, sem kunni að sjá um fjórar stelpur. Þú klipptir okkur, snyrtir okkur og fléttaðir á okkur hárið. Hvernig þú nenntir að standa í því, þar sem við kunnum ekki að meta það þá.

Þú last fyrir okkur, kenndir okkur bænir og horfðir með okkur á teiknimyndir.

Þetta allt eftir langa vinnudaga þar sem þú vannst hörðum höndum að skapa handa okkur öruggt og fallegt heimili. Lifandi og ævintýralegt líf með ferðalögum, ævintýrum og samveru. Þú varst þolinmóður og blíður við uppeldi á fjórum sjálfstæðum stelpum. Þú varst vinur okkar líka.

Dýrmætast er þó hvernig þú dekraðir við okkur á máta sem er ómetanlegur og fæst ekki keyptur. Þú varst nefnilega ekki bara heimsins besti faðir og afi, heldur líka alltaf svo ótrúlega góður maður fyrir mömmu okkar, sálufélaga þinn. Ég hef aldrei upplifað svona sterka og einstaka ást eins og er ykkar á milli. Þú sýndir henni það líka daglega með dekri, virðingu og gífurlegri umhyggju. Sést þetta allt líka í tengdasonum þínum, sem við systurnar vorum svo lánsamar að hafa auga fyrir. Út af þér og þinni ást, virðingu og umhyggju. Við vorum prinsessurnar þínar.

Pabbi minn gat lagað og byggt allt, var sterkastur, duglegastur og fallegur að innan sem utan. Pabbi minn hló alltaf svo dátt, brosti svo breitt. Pabbi minn vissi alltaf hvernig hlutirnir áttu að vera og vildi að ég vissi það líka. Hann hætti aldrei að kenna mér bæði stóra sem smáa hluti. Pabbi minn gerði miklar kröfur til mín, pabbi minn tók mér samt alltaf bara eins og ég er. Pabbi minn kom heim með svartar hendur af olíu og strauk með stórri hlýrri lúku yfir andlitið á mér. Pabbi minn endurraðaði eftir mig í uppþvottavélina og sagði mér að athuga hvort húsið væri læst. Tvisvar. Pabbi minn var besti pabbi, besti afi og sálufélagi mömmu minnar. Pabbi minn er ómetanlegur.

Elsku pabbi minn, þín er svo sárt saknað. Ólu systur veitir eflaust ekki af hjálp við húsið í Nangijala. Þú, hún og Hanna amma eruð nú aftur saman, við sjáumst þar.

Þín elskandi dóttir,

Tinna.

Pabbi minn var svo stór hluti af mínu lífi, hann var vinur minn og ég leitaði til hans með svo margt. Við áttum gott skap saman og nærvera hans var yndisleg. Þegar einhverju átti að hrinda í framkvæmd á mínu heimili þá ráðfærði ég mig við hann. Pabbi kom og gerði hér við og smíðaði alveg eins vel og honum einum var lagið, stundum var ég send til baka með eitthvað sem honum fannst ekki nógu öruggt í barnaumhverfi hér, enda allt vel boltað niður hjá mér svo barnabörnin hans væru örugg. Ég get ekki komið því í orð hversu mikið hann elskaði barnabörnin sín, en ég veit að hann fór að sofa og vaknaði hugsandi um þau því þegar ég talaði við pabba þá var hann yfirleitt að spyrja um þau og dásama, stundum vorum við líka bara að spjalla um allt og ekki neitt, daginn minn eða hans. Okkur þótti líka voða gaman að dansa saman og versla. Pabbi kveikti golfáhugann hjá Brimi og fóru þeir oft saman á völlinn. Pabbi kenndi börnunum mínum að veiða og gaf þeim allt í þá iðju. Pabbi minn gladdist alltaf manna mest og þótti okkur öllum gaman að upplifa spenninginn og gleðina með honum, enda var alltaf sagt hér á þessu heimili „Varstu búin að sýna afa?“. Þegar ég átti Guðjón Einar þá bjó ég heima í Holtsbúð og var það hans fyrsta heimili, pabbi sótti mig og Guðjón Einar á fæðingardeildina, hann klæddi hann vandlega í litlu fötin sem Guðjón Einar átti að fara heim í og svo festi hann Guðjón Einar vandlega í bílstólinn sem pabbi gaf honum, já og svo tók það pabba örugglega hálftíma að festa stólinn vel og vandlega í bílinn, heim ókum við svo vel undir hámarkshraða. Fyrstu næturnar í Holtsbúðinni var pabbi mér og Guðjón Einari til halds og trausts, pabbi vildi að ég hvíldist, hann svaf með Guðjón sinn uppí hjá sér, svo kom hann með Guðjón Einar niður svo ég gæti gefið honum. Pabbi var svo stoltur af nafna sínum og talaði svo fallega til hans þegar hann var að ráðleggja honum og það gerði hann með öll börnin mín. Pabbi hringdi til mín um daginn og spurði mig hvort ég hefði rætt um það við Guðjón Einar hvað það væri óhollt að láta braka svona í höndunum á sér og svo líka hvort hann væri að borða nógu hollt, þetta var pabbi minn alveg í hnotskurn, hann elskaði okkur af öllu hjarta og hann var með risastórt hjarta. Ég og pabbi kvöddumst alltaf með kossum á kinn og þeir voru alltaf tveir, eitthvað sem pabbi hafði frá mömmu sinni, svona tveir alveg þéttir í röð. Þegar ég var barn og unglingur vakti hann mig af mikilli varkárni og strauk mér létt. Þegar hann svæfði mig sem barn þá fór hann með litla bæn sem hann kenndi okkur systrum og svo beið ég í tvær mínútur þangað til hann steinsofnaði og náði mér svo í leikfang og lá þarna við hliðina á honum og lék mér, enda svo gott að vita af pabba þarna hjá mér.

Pabbi, þú gafst mér svo mikið og ég lærði svo margt af þér, þú varst mín stoð í lífinu og ljósberi. Ég þarf að læra að lifa án þín og það verður það erfiðasta sem ég hef þurft að takast á í lífinu.

Ég elska þig, pabbi minn, og ég sakna þín.

mbl.is/minningar

Þín dóttir,

Guðrún Karólína

Guðjónsdóttir.

Elskulegur tengdafaðir minn og vinur, Guðjón Ólafsson, kvaddi okkur allt of snemma og skyndilega. Það er erfitt að hugsa til þess í þessum skrifuðu orðum að síðast þegar við sáumst, hafi verið það síðasta.

Guðjón var þeim frábæra eiginleika gæddur að hægt var að leita til hans með allt, frá manns eigin hugarangri til bilaðra og allt að ónýtra hluta. Hann tók því jafnan með sínu jafnaðargeði, æðruleysi og brosti svo útí annað eins og honum einum var lagið.

Þá hafði hann margt og mikið að gefa af sér og var sífellt að miðla sinni reynslu til okkar allra og ég átti mörg handtökin eftir ólærð af honum.

Ég minnist allra góðu stundanna þar sem við sátum og skiptumst á sögum úr bransanum enda ávallt af nógu að taka.

En ég er þess fullviss að þó hann sé farinn frá okkur hér þá vakir hann yfir okkur og fylgist vel með öllu því sem honum er kærkomið, fjölskyldu, vinum, ættingjum og samstarfsfólki.

En einfaldlega besti tengdafaðir sem hugsast gat og þín verður sárt saknað og minning þín mun lifa ljóslifandi.

Hvíl í friði.

Gunnar Þór Bergsson.

Elsku afi minn.

Föstudaginn 1. ágúst féll frá of ungur maður og var hann einn af frábærustu mönnum sem ég hef nokkurn tímann fengið að kynnast. Hann afi minn var alltaf í góðu skapi, þvílíkur grallari sem gat alltaf fengið mann til að hlæja ef maður var í vondu skapi. Afi gat reddað öllu og græjað. Það var hann afi okkar sem fékk okkur til þess að fara að veiða og kenndi hann okkur allt með mikilli þolinmæði og áttum við ótalmargar góðar stundir í veiðiferðum saman með honum og ömmu. Ég hugsa til þín alla daga, afi minn, og sakna þín óendanlega mikið!

Þinn,

Dagur.

Elsku besti afi.

Föstudaginn 1. ágúst féll frá yndislegur maður í alla staði, hann Guðjón afi. Hann var hress, stálhraustur, flottur og ungur maður. Hann vaknaði ávallt snemma á morgnana og byrjaði daginn á góðum morgunmat.

Afi var góður veiðifélagi og á ég góðar minningar um okkur félagana að veiða á flugu. Allt sem ég kann í veiði kenndi hann afi mér, takk fyrir allar veiðiferðirnar og svo auðvitað sumarbústaðaferðirnar. Hann var ákveðinn og vildi hafa hlutina eins og þeir eiga að vera og stóð alltaf fyrir sínu. Við eigum margar góðar minningar saman og langar mig bara að segja að ég elska þig af öllu hjarta og þín verður sárt saknað.

Hvíldu í friði.

Þinn,

Magni.

Elsku yndislegi afi.

Hinn yndislegi afi minn fór úr lífi okkar 1. ágúst og verður hans sárt saknað. Afi var góður, hress, hraustur og yndislegur maður í alla staði. Afi var alltof ungur til að fara, en svona er nú bara lífið og núna er hann á góðum stað.

Þú kenndir mér margt og verður því ekki gleymt. Takk fyrir allan þann stuðning sem þú veittir mér, elsku afi. Það var svo gaman að hafa þig á hliðarlínunni þegar ég var að keppa í fótbolta eða handbolta. Ég hugsa til þín hvern einasta dag og mun aldrei gleyma þér. Minning þín mun ávallt lifa í hjarta okkar alla tíð. Hvíldu í friði, elsku afi minn.

Þín,

Arnheiður Björk.

Afi, þú varst miklu meira en bara afi minn, þú varst líka yndislegasti, skemmtilegasti, fyndnasti, hressasti, hjálpsamasti, vandvirkasti og örugglega mesti snyrtipinni í heimi. Þú kenndir mér flest af því sem ég kann, bestu minningarnar sem ég á með þér eru þegar við vorum að smíða eða laga eitthvað og fara til þín út í bílskúr þar sem þú varst að vinna. Þú varst einn af mikilvægustu mönnum í mínu lífi. Guðjón afi, ég elska þig og þú munnt alltaf eiga stóran stað í mínu hjarta.

Þinn elskandi dóttursonur

Jóhann Örn Magnússon.

Vertu hjá mér Drottinn og vaktu yfir mér,

veit mér náð að treysta einum þér.

Gættu mín á vegi, gleði og kífs,

gef mér þína sælu við endir þessa lífs.

(Rósa amma)

Guðjón, minn yndislegi bróðir, er farinn frá okkur og söknum við hans sárt. Mig langar að minnast hans með nokkrum fátæklegum orðum. Minningar um yndislegar samverustundir með Guðjóni hrannast upp í hugann og veita huggun í sorg. Við ólumst upp á Patreksfirði við gott atlæti foreldra okkar. Guðjón var einstaklega skapgóður og jákvæður maður og alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt. Við Doddi fórum ófáar ferðir með þeim Guðjóni og Beggu vestur á firði, á sjómannadag á Patró, í Tálknafjörð og til berja og vorum þá oftast í einum bíl, sem gerði ferðirnar enn skemmtilegri. Það var aldrei lognmolla þar sem Guðjón var annars vegar og var hann alltaf hress og skemmtilegur. Guðjón naut þess að ferðast um landið og var óþreytandi í að rifja upp kennileiti og örnefni. Guðjón og Begga voru einstaklega samrýnd hjón sem áttu mörg sameiginleg áhugamál, veiði, golf, ferðalög o.m.fl., þau voru alltaf saman í öllu. Fjölskyldan var honum einkar hugleikin og sóttu barnabörnin mikið til afa síns. Það var notalegt að taka lykkju á leið sína og fá fast og gott faðmlag hjá bróður mínum. Hæ, gaman að sjá þig. Svo var farið að plana eitthvað skemmtilegt.

Ein hugmyndin var að fara vestur á heimaslóðir okkar með fjölskyldurnar næsta sumar, en stórt skarð er komið í þann hóp. Að lokum langar mig að þakka bróður mínum, mágkonu og fjölskyldunni allri, fyrir hlýhug í minn garð.

Elsku Begga, dætur, tengdasynir og barnabörn.

Við Doddi og fjölskylda vottum okkar dýpstu samúð og biðjum guð að varðveita ykkur og styrkja.

Kristbjörg systir.

Skyndilegt andlát Guðjóns bróður míns kom á óvart þar sem hann hafði verið svo heilbrigður og hraustur fram til hins síðasta.

Ég á góðar minningar um yndislegan bróður. Guðjón var ekki gamall þegar hann fór að hafa áhuga á bílum. Allar ferðirnar með pabba í vegavinnu spegluðust svo vel í leik með vörubíla sem hann dró á eftir sér í miklum vegavinnuframkvæmdum í þúfum og moldarbörðum inni á Koti. Þá hafði hann gaman af að handleika hluti sem hægt var að taka í sundur og skoða hvað þar væri inní. Svo var það spurning hvort hægt væri að setja þá saman aftur, sem var svo aukaatriði, Guðjón var búinn að skoða. Mér eru minnisstæðar skemmtilegu ferðirnar í Tálknafjörð til afa og ömmu. Þá var farið niður á bryggju með prik sem veiðistöng og spotta sem öngull var hnýttur á. Veiðin var aðallega koli og marhnútur. Það var mikið kapp í Guðjón við þessar veiðar, enda mikill áhugamaður um veiðar síðar á lífsleiðinni. Guðjón lærði bifvélavirkjun, sem kom ekki á óvart, hjá bifreiðaverkstæði Veltis. Guðjón var afar handlaginn og flinkur viðgerðarmaður. Hjá Velti vann hann svo í nokkur ár ásamt eiginmanni mínum, Guðmundi, og voru þeir góðir félagar. Guðjón seldi Guðmundi bíl um þetta leyti sem seinna varð svo fornbíll. Bíll þessi hefur mikið verið notaður til þess að aka brúðhjónum. Guðjón fékk svo þennan bíl til að aka yngstu dóttur sinni, Tinnu, þegar hún gifti sig síðastliðið sumar. Það fannst Guðjóni sérstaklega ánægjulegt. Guðjón var mikill mannvinur og hafði sérstakt dálæti á börnum, enda hændust þau að honum. Það voru skemmtilegar berjaferðirnar með honum. Karlarnir sátu frammí og konurnar aftur í og eins og ávallt var Guðjón hrókur alls fagnaðar. Við hæfi finnst mér að kveðja þig, elsku bróðir, með eftirmælum Rósu ömmu til pabba okkar, þegar hann féll frá.

Varðveittu hann Drottinn,

vörður allra og hlíf,

sem á vegi þínum verða,

hjá þér er eilíft líf.

(GSG)

Elsku Begga, dætur, tengdasynir og barnabörn, megi fallegar minningar ylja ykkur í sorginni og sefa sárasta söknuðinn.

Sigurrós systir

og fjölskylda.

Þegar sorgin knýr skyndilega dyra og ungur maður í blóma lífsins er hrifinn á brott er oft erfitt að koma hugsunum í orð. Eftir situr tómið og minningarnar um hjartahlýjan og góðan dreng sem tengdasonur minn var, ég virti og þótti mjög vænt um eftir áratuga kynni.

Læt ég og Helgi eftirfarandi kvæði verða okkar hinstu kveðju til hans:

Þó sólin nú skíni á grænni grundu

er hjarta mitt þungt sem blý,

því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský.

Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða,

svo fallegur, einlægur og hlýr,

en örlög þín ráðin – mig setur hljóða,

við hittumst samt aftur á ný.

Megi algóður guð þína sálu nú geyma

gæta að sorgmæddum, græða djúp sár,

þó kominn sért yfir í aðra heima

mun minning þín lifa um ókomin ár.

(Höf. ókunnur.)

Hvíldu í friði, elsku Guðjón minn, og þú, elsku Begga mín, megi almáttugur góður guð styrkja og hugga þig og þína ástkæru fjölskyldu.

Erna Hannesdóttir og Helgi Arnlaugsson.

Það eru þrátíu ár síðan snjóflóð féll á Ólafsvík (1984). Þar skemmdust hús og Steypustöð og verkstæði hjá Loftorku. Ég rak bílaverkstæði í Reykjavík og vann mikið fyrir Brunabótafélag Íslands. Þeir hjá Brunabótafélaginu leitaðu til mín og báðu mig að fara vestur og meta tjónið. Tjónið sem ég átti að meta voru steypubílar og verkfæri hjá Loftorku. Þar hitti ég Guðjón fyrst. Hann sagði mér þá, að hann hefði verið nýfarinn af verkstæðinu þegar snjóflóðið féll, en verkfærakassinn hans eyðilagðist. Hann sagði það í lagi, en hann slapp.

Sex árum síðar setti ég upp tjónaskoðunarstöð fyrir Brunabótafélag Íslands og Samvinnutryggingar, sem fékk nafnið Vátryggingafélag Íslands VÍS. Ég auglýsti eftir skoðunarmanni. Það komu nokkrir menn í viðtal, þar á meðal Guðjón. Ég man það eins og það hafi gerst í gær en eftir viðtalið við hann, spurðu konurnar sem unnu hjá Tjónaskoðunarstöðinni sem voru þrjár: „Ætlar þú að ráða Guðjón?“ Þá sagði ég: „Hann er ómögulegur þessi“, til að fá viðbrögð. Þær héldu nú ekki. Hann er svo myndarlegur og kemur vel fyrir.

Þarna hófst mikil vinátta á milli okkar. Guðjón lærði hjá Volvo (Velti)

og hafði unnið mikið við vörubíla. Saman kynntum við nýjungar í bílgreininni og reyndist hann hinn besti samstarfsmaður um allt, t.d. grindarréttingar, nýjustu efni í bílamálun o.fl.

Fengum við einnig erlenda sérfræðinga til landsins okkur til aðstoðar.

Tvisvar fórum við saman til Frankfurt á bílasýninguna og var Guðjón góður ferðafélagi og áhugasamur mjög.

Í frítímum fórum við hjónin saman í veiði, t.d. í Brennuna og þar fékk Finnbjörg sinn fyrsta lax á maðk, maríulax, og Guðjón sinn fyrsta lax á flugu, maríulax.Við fórum saman tvisvar á ári í Eldvatnið í veiði í mörg ár og voru það skemmtilegar stundir.

Ég var formaður veiðifélags BM Vallár og fékk Guðjón í félagið. Sú veiði var líka stunduð af kappi.

Um leið og við hjónin kveðjum vin okkar og þökkum honum samfylgdina, þá sendum við þér, kæra Finnbjörg, dætrum ykkar og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Kristján Grétar

Tryggvason,

Annalísa Magnúsdóttir.

Í dag kveðjum við góðan félaga úr röðum Líkamsræktarinnar. Okkur setti hljóða þegar við fréttum af ótímabæru andláti Guðjóns í byrjun verslunarmannahelgarinnar. Guðjón byrjaði í Líkamsrækt B&Ó haustið 1994 og var virkur félagi alla tíð eða í 20 ár en hann tilheyrði sex-tímanum, en svo er hópurinn sem hann var í nefndur en hinn er sjö-tíminn. Hann stundaði ræktina af kappi og var einstaklega fylginn sér þegar komið var að körfuboltanum. Guðjón var ansi duglegur í dómgæslunni og lét menn ekki komast upp með neitt múður ef menn brutu af sér gagnvart liðsfélögunum eða honum sjálfum, rétt skyldi vera rétt!

Í Líkamsræktinni er jöfn áhersla lögð á líkamlega áreynslu og félagslega þáttinn, en þar má nefna alls kyns árstíðafagnaði, gönguferðir og jeppaferðir. Í fyrstu jeppaferðinni sem farin var haustið 2001 í Þórsmörk, Langadal, er okkur minnisstætt sem þar vorum þegar Guðjón kvaddi sér hljóðs undir borðhaldinu, steig upp á stól til þess að ávarpa viðstadda með útbreiddan faðminn í matsalnum til þess að segja okkur gamansögu. Þótti okkur tilburðir hans líkjast því sem þar væri prestur á ferð að blessa söfnuð sinn, en eftir þetta var hann kallaður í okkar hópi presturinn.

Guðjón var ávallt hress og glaður, tilbúinn að taka þátt í því sem verið var að gera hverju sinni og leggja sitt af mörkum. Hann og Finnbjörg (Begga), voru mjög samstillt hjón og virk í flestum þeim félagslegu þáttum sem boðið hefur verið uppá á í ræktinni í gegnum árin og voru þau með okkur þegar við héldum upp á 25 ára afmæli Líkamsræktarinnar núna í vor í Stykkishólmi og nutu sín vel eins og allir.

Guðjóns verður sárt saknað í haust þegar sex-tíminn og aðrir tímar ræktarinnar koma saman til þess að byrja að hreyfa sig eftir hreyfingarleysi sumarsins. Kæri Guðjón, takk fyrir góð og skemmtileg kynni, hafðu þökk fyrir allt og allt. Megi góður guð vernda ykkur, elsku Begga, og verða fjölskyldu þinni mikill styrkur í ykkar miklu sorg og ótímabærum missi.

F.h. Líkamsræktar B&Ó,

Ólafur Ág. Gíslason og Birna Guðmundsdóttir.

Það er þyngra en tárum taki að skrifa minningarorð um glæsimennið Guðjón Breiðfjörð Ólafsson sem féll frá í blóma lífsins föstudaginn 1. ágúst.

Það var hringt í mig á laugardeginum úr númeri frá Vís og í símanum er fyrrverandi vinnufélagi okkar að segja mér að Guðjón sé dáinn, hafi orðið bráðkvaddur í sumarbústaðnum sínum á föstudeginum. Það fór um mig doði við þessar ömurlegu fréttir. Þetta kom eins og reiðarslag þar sem Guðjón hugsaði vel um heilsuna og var í góðu líkamlegu formi.

Þegar svona fréttir berast manni verður maður fyrst reiður yfir óréttlætinu, að þessi ljúflingur skuli vera tekinn burt frá fjölskyldu og vinum á besta aldri. Guðjón og fjölskylda þurftu því miður að reyna meira en flestir í lífinu þar sem þau hjón Guðjón og Begga þurftu að sjá á eftir dóttur sinni fyrir nokkrum árum, sem lést mjög ung, svo manni fannst eins og hans fjölskylda væri búin að reyna nóg og þau hjón ættu skilið að fá að eldast saman, þau voru svo miklir vinir og með samrýmdari hjónum sem ég hef kynnst. Guðjón var mikill fjölskyldumaður og afahlutverkið var honum hugleikið. En það er ekki spurt að stað eða stund, tíma eða aldri þegar kallið kemur. Og því miður kom það allt of snemma núna.

Við Guðjón kynntumst eftir að ég hóf störf hjá Vís í nóvember 2004, þá var þessi gráhærði, glæsilegi maður í sömu deild og ég, Guðjón var alltaf flottur í tauinu og vel til hafður, ég áttaði mig reyndar ekki á honum í fyrstu, hann gat verið stuðandi og hafði mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum. Eftir því sem tíminn leið og við fórum að spjalla meira, kynnast og skiptast á skoðunum þá sá ég að þarna var á ferðinni mikill ljúflingur sem var vinur vina sinna og mátti ekkert aumt sjá. Við vorum ekki alltaf sammála en bárum virðingu fyrir skoðunum hvor annars og aldrei kom upp ósætti á milli okkar þau tæp 10 ár sem við unnum saman, og það tókst með okkur góð vinátta sem stóð allt fram til síðasta dags.

Eftir að ég hætti störfum hjá Vís snemma á þessu ári hringdi Guðjón nokkrum sinnum í mig til að heyra hvað hefði á daga mína drifið og hvernig ég hefði það. Mér þótti óskaplega vænt um þessi símtöl, en því miður á ég ekki eftir að sjá nafnið „Guðjón Ólafs“ oftar á gsm-símanum mínum þegar hann hringir. Það er sjónarsviptir að mönnum eins og Guðjóni sem þorði að segja það sem honum fannst og hann hafði alltaf ákveðnar skoðanir á öllu og var óhræddur við að viðra þær, sama hvað öðrum fannst.

Hugur minn er hjá Beggu konu hans, dætrum, tengda- og afabörnum. Missir þeirra er mikill og sendum við hjónin þeim innilegar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum og megi guð almáttugur styrkja ykkur í sorginni.

Hversvegna er leiknum lokið?

Ég leita en finn ekki svar.

Ég finn hjá mér þörf til að þakka

þetta sem eitt sinn var.

(Starri í Garði)

Hvíl í friði, kæri vinur.

Sveinbjörn Hannesson.

Í dag kveðjum við kæran vin, mág og svila. Hugurinn reikar og minningar brjótast fram. Minningar um ótalmörg ferðalög hér heima og erlendis og fjörug og sprengiglöð áramót. Minningar um kærleiksríkar samverustundir bæði í gleði og sorg. Minningar sem óma af strákslegri kátínu og hlátri.

Guðjón var mikill fjölskyldumaður og hann var alltaf til staðar fyrir sitt fólk sem hann var afar stoltur af.

Guðjóns verður sárt saknað en minning hans mun lifa með okkur. Hvíl í friði, kæri Guðjón, takk fyrir allt.

Jóhann og Anna, Haddý og Bjarni, Íris og Dóri, Jesper og Christina.

Fallinn er frá Guðjón B. Ólafsson alltof fljótt, æskufélagi og bekkjarbróðir frá Patreksfirði. Þar ólumst við upp í frjálsu uppeldi, lékum okkur úti alla daga frá morgni til kvölds. Ekki vantaði verkefnin hjá okkur Guðjóni, Snæbirni, Ægi og síðar Sveinbirni. Við ólumst upp við nálægð fjárhúsa, kaupfélagsins, skólans, hlíðarinnar, fjörunnar, sýslumannsins, prestsins og skólastjórans. Við byggðum okkur kofa úr efni gamla kaupfélagsins sem var verið að rífa og glerkistu rétt fyrir neðan fjárhús afa Ægis og efni héðan og þaðan. Við settum upp hjólaverkstæði í fjárhúsum föður Guðjóns sem lágu fyrir innan og ofan Stekka 13. Við smíðuðum bát úr járnplötu, fleka og fleira. Einnig settum við upp útgerð og bræðslu með bátum sem við drógum með í fjörunni. Í hlíðinni vorum við með bú þar sem dýrin voru horn og bein, ímyndunarafl okkar var óþrjótandi. Það eina sem við þurftum að passa okkur á var þegar mæður okkar kölluðu í mat. Guðjón flutti snemma frá Patró en við vissum alltaf hvert af öðru. Það var svo þegar Patró 52 módel fór að hittast reglulega, þegar börnin voru vaxin úr grasi, að kynnin hófust á ný. Guðjón mætti oft á sunnudagshitting eða þegar við fórum út að borða. Finnbjörg kom alltaf með honum þegar við fórum vestur á Patró á sjómannadaginn og féll strax vel inn í hópinn. Guðjón var alltaf brosmildur og glaðvær í fasi, þannig munum við hann. Þessi hópur, Patró 52 módel, hefur verið dásamlega gefandi og alltaf nóg að spjalla um. Fráfall Guðjóns kom okkur öllum í opna skjöldu eins og höggbylgja. Guðjóns verður sárt saknað en svona er lífið það þekkjum við úr Þorpinu að vestan. Við færum Finnbjörgu og fjölskyldum Guðjóns okkar innilegustu samúðarkveðju.

Fyrir hönd Patró 52 módel,

Ægir, Snæbjörn,

Gunna Jóna og Erna.