Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið kærður fyrir kynferðislega áreitni gagnvart dreng rétt innan við tvítugt. Atvikið átti sér stað fyrr í sumar á Húsavík og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni á Akureyri. Hvorugur mannanna er búsettur á Húsavík.

Að sögn lögreglumanns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri gengur rannsókn vel. Verður málið í framhaldinu sent til ríkissaksóknara. Brot sem flokkast undir kynferðislega áreitni getur falið í sér óviðeigandi orðalag, brot á blygðunarkennd eða óviðeigandi snertingu.