Ólöf Nordal
Ólöf Nordal
Ólöf Nordal, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, greindist nýlega með illkynja æxli en hún greindi frá því á heimasíðu sinni í gær. „Þetta bar alveg svakalega brátt að.

Ólöf Nordal, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, greindist nýlega með illkynja æxli en hún greindi frá því á heimasíðu sinni í gær.

„Þetta bar alveg svakalega brátt að. Ég fór á slysadeildina á föstudagskvöld og það var búið að skera mig upp á mánudagsmorgni,“ segir Ólöf og er nú nokkurra mánaða lyfjameðferð hafin. Vegna veikindanna ákvað Ólöf að vera heima á Íslandi í allan vetur þar sem fjölskyldan ætlar að takast á við þetta en Ólöf á fjögur börn með Tómasi Má Sigurðssyni.