Manuel Neuer
Manuel Neuer
Manuel Neuer markvörður Þýskalandsmeistara Bayern München og heimsmeistara Þjóðverja verður ódauðlegur í formi vaxmyndar sem komið verður upp af honum í Madame Tussaud-safninu í Berlín. Talsmaður safnsins greindi frá þessu í gær.

„Manuel Neuer er einn af vinsælustu fótboltamönnum heims og síðan á HM í sumar þá hefur verið mest beðið um hann af gestunum sem heimækja okkur,“ sagði Sandra Schmalzried framkvæmdastjóri Madame Tussaud-safnsins í Berlín í gær.

Neuer er af mörgum talinn besti markvörður heims en þessi stóri og stæðilegi leikmaður var útnefndur besti markvörðurinn á heimsmeistaramótinu í Brasilíu í sumar þar sem hann sýndi snilldartakta. Neuer verður ekki eini markvörðurinn sem mun prýða safnið í Berlín en þar fyrir er goðsögnin Oliver Kahn og þá er þar einnig Jürgen Klinsmann. gummih@mbl.is