Þrír karlmenn féllu fjóra metra af vinnupalli við íbúðarhús í Drafnar-felli í Reykjavík um miðjan dag í gær. Tveir þeirra voru fluttir á slysadeild, þó ekki alvarlega slasaðir, en sá þriðji hlaut einungis skrámur.
Þrír karlmenn féllu fjóra metra af vinnupalli við íbúðarhús í Drafnar-felli í Reykjavík um miðjan dag í gær.
Tveir þeirra voru fluttir á slysadeild, þó ekki alvarlega slasaðir, en sá þriðji hlaut einungis skrámur.
Ekki lá ljóst fyrir í gærkvöldi hvað olli slysinu en rannsókn þess er í höndum lögreglunnar og Vinnueftirlitsins.