Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures leitar nú að ungum leikurum fyrir kvikmyndina Hjartastein eftir Guðmund Arnar Guðmundsson sem áætlað er að fari í tökur í ágúst á næsta ári. Strákar á aldrinum 11-17 ára og stelpur 12-17 ára eru hvött til að sækja um en áheyrnarprufur verða haldnar í þessum mánuði.
Hjartasteinn gerist um sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi og fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina, eins og segir í tilkynningu. Guðmundur er handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar sem verður fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd.
Áhugasömum er bent á að sækja um með því að senda eina til þrjár nýlegar ljósmyndir og fullt nafn, aldur og hæð, símanúmer og nafn forráðamanns á netfangið casting@joinmotionpictures.com fyrir 15. nóvember. Nánari upplýsingar má finna á www.facebook.com/heartstonethemovie.