Efnileg Ungir einsöngvarar koma fram á tónleikunum á morgun kl. 17.
Efnileg Ungir einsöngvarar koma fram á tónleikunum á morgun kl. 17.
Tónleikar í röðinni Ungir einsöngvarar verða í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, klukkan 17.

Tónleikar í röðinni Ungir einsöngvarar verða í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, klukkan 17. Fram koma þau Anna Guðrún Jónsdóttir, Árný Björk Björnsdóttir, Davíð Ólafsson, Gyrðir Viktorsson, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Solveig Óskarsdóttir, ásamt píanóleikaranum Kristni Erni Kristinssyni.

Ungu einsöngvararnir syngja öll í Kór Langholtskirkju og stunda söngnám, annaðhvort í Söngskólanum í Reykjavík eða Söngskóla Sigurðar Demetz. Á tónleikunum verður meðal annars flutt tónlist eftir Bizet, Strauss, Mozart, Weber og Gluck.