— Morgunblaðið/Ómar
Dómkórinn í Reykjavík flytur á sunnudagskvöldið klukkan 20 hið rómaða tónverk franska tónskáldsins Gabriels Fauré, Requiem. Tónleikarnir, sem verða í Neskirkju, eru hluti af Tónlistardögum Dómkirkjunnar 2014, en þeir standa frá 2. til 12. nóvember.

Dómkórinn í Reykjavík flytur á sunnudagskvöldið klukkan 20 hið rómaða tónverk franska tónskáldsins Gabriels Fauré, Requiem.

Tónleikarnir, sem verða í Neskirkju, eru hluti af Tónlistardögum Dómkirkjunnar 2014, en þeir standa frá 2. til 12. nóvember. Að auki flytur kórinn smáverkið Cantique de Jean Racine sem er einnig eftir Fauré. Á tónleikunum syngur kórinn undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Á orgelið leikur Lenka Mátéová en einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Fjölnir Ólafsson barítón. Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2013 sem söngkona ársins og hefur Fjölnir unnið til margra viðurkenninga erlendis þrátt fyrir ungan aldur.