[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segist ætla að halda áfram með sín verkefni í innanríkisráðuneytinu og ljúka þeim vel.

Viðtal

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segist ætla að halda áfram með sín verkefni í innanríkisráðuneytinu og ljúka þeim vel. Hún segist ekki sækjast eftir að taka á ný við dómsmálunum sem hún sagði sig tímabundið frá þegar Gísli Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður hennar, var ákærður fyrir að afhenda fjölmiðlum skjöl um hælisleitanda. Hann hefur nú verið dæmdur fyrir það brot.

„Þetta mál hefur verið afar erfitt í heilt ár, ég hef ekki legið á því,“ segir Hanna Birna. „Játning hans gagnvart mér í gær [fyrradag] kom mér algerlega í opna skjöldu og er gríðarleg vonbrigði. Ég er sár og vonsvikin. Þetta er gríðarlegur trúnaðarbrestur gagnvart þeim sem hann átti að gæta trúnaðar gagnvart en einnig gagnvart samstarfsfólkinu í ráðuneytinu og mér. Hann naut fulls trausts. Ég spurði hann ítrekað og fékk alltaf sama svarið. Ég hafði ekki ástæðu til að bregðast fyrr við en mér þykir þetta allt mjög miður.“

Þykir vænna um verkefnin en stólana

Hanna Birna nýtur stuðnings þingflokks Sjálfstæðisflokksins til að gegna áfram embætti innanríkisráðherra. Spurð hvort til greina hafi komið að hún segði af sér segir Hanna Birna að nú sé fengin ákveðin niðurstaða í málinu. Hún staðfesti að hún hefði ekki haft aðkomu að því.

„Ég hef oft sagt að mér þykir vænna um verkefnin en stólana. Ég hef oft, því ég er þannig gerð, velt fyrir mér stöðu minni í því samhengi, hvort ég sé að ná þeim árangri sem ég tel mikilvægt að ná.“

Hún segist ætla að halda áfram með sín verkefni og ljúka þeim vel. „Ég hef auðvitað oft í þessu ferli íhugað það [að segja af sér] en það eru frekar persónulegar hugleiðingar. Þetta mál hefur verið erfitt fyrir þá sem næst mér standa, fjölskylduna, og ég hef frekar hugsað um það hversu langt ég get gengið gagnvart þeim.“

Hanna Birna svarar því játandi að hún beri pólitíska ábyrgð á sínum aðstoðarmönnum. „Þetta var lögbrot sem ég hafði enga vitneskju um, gat ekki stöðvað eða brugðist við fyrr, eins og ég hefði þó gjarnan viljað gera.

Ég er búin að segja af mér sem dómsmálaráðherra, gerði það um leið og Gísli var ákærður. Ég veit ekki hvort menn vilja að ég segi oft af mér.“

– Hafðir þú Gísla aldrei grunaðan?

„Ég treysti manninum og hafði ekki forsendur til annars. Hann var starfsmaður minn og hluti af teyminu hér. Hann gaf aldrei til kynna með neinum hætti að hann hefði sent frá sér upplýsingarnar. Ég spurði hann ítrekað og fékk alltaf sömu svörin.“

Reynt að vinna heiðarlega

– Telur þú að málið hafi skaðað ríkisstjórnina og Sjálfstæðisflokkinn?

„Það er ekkert sem bendir til þess. Ég tel að skaðinn hafi aðallega verið gagnvart ráðuneytinu, gagnvart verkefnum sem hér er unnið að. Auðvitað hefur þetta verið erfitt og ómögulegt mál í alla staði. Ég tel að það hafi skaðað mig pólitískt og verð ég að vinna úr því. Fyrir hönd þessa starfsmanns míns verð ég að biðjast afsökunar á að hann hafi komið fram með þessum hætti. Þetta eru mistök sem hann verður að lifa við alla sína ævi.

Málið hefur tekið á sig allskyns myndir sem ekki tengjast því beint. Það er ekkert óeðlilegt við það. Fjölmiðlar og pólitískir andstæðingar hafa skynjað það að ég hef ekki getað skýrt það út og fundið að málið hefur verið mér erfitt. Vissulega hefur það verið mér erfitt. Ég hef fengið harðdrægar ásakanir og hótanir. Ég hef verið sett í snúna stöðu.“

– Sagðir þú Alþingi satt allan tímann um meðferð ráðuneytisins á málinu?

„Ég gaf Alþingi alltaf bestu upplýsingar sem ég hafði á hverjum tíma. Umræðan hefur snúist um viðbót við skjalið sem aldrei var í mínu minnisblaði. Ég gat ekki gengist við þeim upplýsingum. Ég hef alltaf reynt að vinna að þessu máli heiðarlega, miðað við þær upplýsingar sem ég hef haft.“

Breiður stuðningur í flokknum

„Hún nýtur trausts til að halda áfram. Hún nýtur óskoraðs trausts frá mér og það kom fram breiður stuðningur við ráðherrann á þingflokksfundinum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir þingflokksfund þar sem staða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur var rædd.

„Hanna Birna var kosin á þing sem leiðtogi okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík, hún er varaformaður flokksins og fyrsti þingmaður Reykvíkinga. Mér finnst hún líka hafa ábyrgð sem slíkur stjórnmálamaður sem ég veit að hún vill rísa undir. Það gerir hún best með því að halda sínu striki og hefur til þess traust frá mér.“

Gísli í skilorðsbundið fangelsi

• Fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra játaði leka á minnisblaði um Tony Omos • Lýsti sig saklausan í upphafi • Ný gögn komu fram • Unir niðurstöðu dómsins Kjartan Kjartansson

Björn Jóhann Björnsson

Gísli Freyr Valdórsson, fv. aðstoðarmaður innanríkisráðherra, var í gær dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í nóvember í fyrra lekið minnisblaði með viðkvæmum persónuupplýsingum um hælisleitandann Tony Omos.

Arngrímur Ísberg kvað upp dóminn. Hann ákvað refsingu Gísla átta mánuði en fresta skyldi fullnustu dómsins og skyldi hann falla niður eftir tvö ár haldi Gísli skilorð. Gerist hann hins vegar sekur um slíkt brot aftur hafi dómurinn nú ítrekunaráhrif á mögulegan dóm í framtíðinni.

Málsaðilar hafa fjórar vikur til að áfrýja dómnum til Hæstaréttar en Gísli sagðist myndu una dómnum. Engan kostnað leiddi af rekstri málsins og verjandi Gísla Freys, Ólafur Garðarsson, krafðist ekki málsvarnarlauna en saksóknari hafði krafist þess að Gísli yrði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Lögreglan fékk ný gögn

Fyrr um morguninn hafði Gísli Freyr játað formlega við dóminn að hann væri sekur af þeim brotum sem á hann væru borin.

Gísli lýsti sig upphaflega saklausan af ákæru í lekamálinu svonefnda þegar það var þingfest 16. september sl. Hann var ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi sínu sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, með því að hafa, á tímabilinu frá þriðjudeginum 19. nóvember 2013 til miðvikudagsins 20. nóvember 2013, látið óviðkomandi í té efni samantektar er bar yfirskriftina „Minnisblað varðandi Tony Omos“.

Ríkissaksóknari segir að upplýsingarnar hafi verið til þess fallnar að hafa áhrif á umfjöllun um málefni Tonys Omos sem hælisleitanda, en þær birtust í Fréttablaðinu og á netmiðlunum visir.is og mbl.is að morgni 20. nóvember 2013.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að við ákvörðun refsingar var haft í huga að Gísli játaði ekki brot sitt fyrr en komið var að aðalmeðferð og eftir að komið höfðu fram ný gögn. Gagnanna aflaði starfsmaður sérstaks saksóknara um síðustu helgi með þartilgerðum hugbúnaði. Sagði saksóknari gögnin sýna að Gísli hefði átt við minnisblaðið, breytt því og síðan sent fjölmiðlum.

Ekki talinn ávinningur af leka

„Í minnisblaðinu, sem ákærði kom á framfæri við fjölmiðla, var að finna viðkvæmar persónuupplýsingar eins og í ákærunni greinir. Hins vegar er ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að ákærði hafi komið minnisblaðinu á framfæri í því skyni að afla sér eða öðrum óréttmæts ávinnings, hvorki fjárhagslegs né annars. Þá hefur ákærði hreint sakavottorð. Samkvæmt þessu verður refsing ákærða ákveðin átta mánaða fangelsi sem bundin skal skilorði eins og í dómsorði greinir,“ segir í dómnum.

Ekki lá fyrir í gær hvort ákæruvaldið myndi áfrýja dómnum. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sagði gott að fá niðurstöðu í málið, þótt hann væri ekki endilega alveg sammála henni.

Skilar af sér í næstu viku

Umboðsmaður Alþingis hyggst í næstu viku skila af sér áliti um samskipti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og Stefáns Eiríkssonar, fv. lögreglustjóra, vegna rannsóknar á lekamálinu. Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður segir við Morgunblaðið að niðurstaða í máli Gísla Freys engu breyta, enda um aðskilin mál að ræða. Alltaf hafi staðið til að skila álitinu í næstu viku. bjb@mbl.is

Skaðabótamál á hendur ráðuneytinu ekki útilokað

„Það er ekki útilokað að höfðað verði nýtt skaðabótamál, það var brotið á mínum skjólstæðingi í krafti þess valds sem ráðuneytinu var falið. Annars hafa hlutirnir gerst hratt undanfarinn sólarhring og við erum að skoða þetta betur,“ segir Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður hælisleitandans Tonys Omos, um játningu og dóm Gísla Freys Valdórssonar.

„Þetta sýnir fram á að minnst einn starfsmaður í ráðuneytinu hefur ekki gætt fullrar hlutlægnisskyldu. Þá má minn skjólstæðingur ætla að mál hans hafi ekki hlotið algerlega faglega meðferð innan ráðuneytisins. Það á eftir að koma betur í ljós hverju síðustu atburðir breyta,“ segir Stefán Karl.

Hvort grunnur sé til nýs skaðabótamáls á hendur innanríkisráðuneytinu bendir hann á að þegar aðalmeðferð málsins átti að fara fram hafi dómarinn klofið bótakröfuna frá og sett hana yfir í sérstakt mál til að einfalda málarekstur.

„Nú liggur fyrir játning og mér þykir eðlilegt að sú játning taki einnig til vilja til að gera upp við þá sem brotið var gegn,“ segir Stefán Karl ennfremur. bjb@mbl.is