Fimmta höfundakvöldið í Gunnarshúsi fer fram í kvöld kl. 20 og mæta að þessu sinni rithöfundurinn Þórarinn Leifsson og ljóðskáldið Kristín Eiríksdóttir og svara spurningum Elínar Bjarkar Jóhannsdóttur um nýútkomnar bækur sínar.

Maðurinn sem hataði börn
eftir Þórarin kom út fyrir fáeinum vikum og
Kok
, myndskreytt ljóðabók Kristínar, einnig. Þórarinn og Kristín eru bæði rithöfundar og myndlistarmenn og Elín er bókmenntafræðingur og skrifar bókmenntagagnrýni fyrir vefinn
Starafugl
.