Umgjörð „Trékassinn er mjög við hæfi og gerir gjöfina virðulegri. Er svo fallegur borði settur utan um og þá er pakkinn klár“ segir Eva Björk Sveinsdóttir.
Umgjörð „Trékassinn er mjög við hæfi og gerir gjöfina virðulegri. Er svo fallegur borði settur utan um og þá er pakkinn klár“ segir Eva Björk Sveinsdóttir. — Morgunblaðið/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Trékassi með flösku af rauðvíni og flösku af hvítvíni er pakki sem fer vel undir jólatrénu. Gæti verið skemmtilegt að gefa starfsmönnum kampavínsflösku í áramótagjöf eftir jólafríið, t.d. til að fagna lokum síðasta vinnudags ársins.

Flaska af góðu víni er nokkuð örugg jólagjöf. Flestir kunna vel að meta að fá flösku af rauðvíni eða hvítvíni til að njóta með matnum, kampavíni til að fagna á gamlárskvöld eða koníaki til að njóta út árið,“ segir Eva Björk Sveinsdóttir. „Með vínflösku er verið að gefa þiggjandanum gleðistund, enda er vín drykkur sem við höfum um hönd þegar við viljum gera okkur glaðan dag í faðmi vina og ættingja.“

Eva er vörumerkjastjóri léttra og sterkra vína hjá Haugen-Gruppen ehf. Fyrirtækið býður upp á ýmsar útfærslur af víngjöfum þar sem vínið getur ýmist staðið eitt sér eða verið hluti af t.d. matarkörfu. „Ef vínflösku er bætt við matarkörfuna gætum við þess að finna vín sem parast vel við annað í körfunni, s.s. osta eða kæfur. Ef vínið stendur eitt og sér sem gjöf beinum við viðskiptavinum hins vegar að víntegundum sem ættu að smellpassa við veislumatinn sem er á borðum landsmanna í kringum jólin.“

Kampavín kóngafólksins

Haugen-Gruppen ehf. varð til árið 2009 þegar núverandi eigendur keyptu rekstur heildsölunnar Vino. Er íslenska vínheildsalan hluti af móðurfyrirtæki sem flytur inn og selur áfengi um alla Skandinavíu. Í vöruúrvalinu má finna vín og bjór frá mörgum öndvegisframleiðendum, s.s. Stella Artois, Becks, Leffe og Hoegarden í bjórdeidinni og Famous Grouse, Remy Martin og Cointreau í styrkta víninu. „Við flytjum líka inn kampavín frá framleiðendum eins og Paul Roger, sem er einmitt sama kampavín og breska konungsfjölskyldan vill helst drekka,“ bætir Eva við og hlær.

Eva segir margar leiðir færar þegar kemur að því að velja vín í jólapakkann. Hún segir algengast að stjórnendur nefni tiltekna krónuupphæð sem þeir eru tilbúnir að eyða og fái þá tillögur að aðgengilegu víni sem ætti að henta. „Við bjóðum upp á ýmsa möguleika við innpökkun en miklu skiptir að pakka vínflöskunni fallega inn. Eigum við til snotrar gjafaöskjur og eins vinsæla trékassa. Trékassinn er mjög við hæfi og gerir gjöfina virðulegri. Er svo fallegur borði settur utan um og þá er pakkinn klár.“

Rautt og hvítt

Gjöfin getur verið ein, tvær, þrjár og jafnvel fleiri flöskur. Segir Eva t.d. upplagt að pakkinn hafi að geyma eina flösku af hvítvíni og aðra af rauðvíni. „Í gjöfum til starfsmanna verður hvítt og rautt vín oftast fyrir valinu en koníakið er frekar gefið stjórnendum og samstarfsaðilum sem gefandinn þekkir vel til. Sterku vínin eru ekki allra og líka vegleg gjöf, og máski eitthvað sem ekki ætti að gefa nema vitað sé að þiggjandinn kunni vel að meta að eiga flösku af fyrsta flokks koníaki.“

Kampavín er líka kjörið til gjafa, enda léttur og aðgengilegur drykkur sem flestum þykir góður. „Er ekki úr vegi að skoða þann möguleika að gefa kampavínsflösku sem nýársgjöf frekar en jólagjöf, og þá t.d. sem glaðning á síðasta vinnudegi ársins.“

Aðspurð hvaða vín kunni að slá í gegn þessi jólin nefnir Eva Adobe-vínin frá síleska framleiðandanum Emiliana Vinos. „Þetta eru mjög aðgengileg vín og ættu þess vegna að fara vel í flesta. Að auki eru öll vín frá Emiliana Vinos lífræn en fyrirtækið er í hópi stærstu framleiðenda heims á sviði lífrænna vína. Eru Íslendingar í dag margir mjög áhugasamir um að prófa lífrænu vínin og leita einnig mikið í „fair-trade“-vín.“

Ef svo ólíklega vill til að vínið falli ekki í kramið hjá þiggjandanum segir Eva að eigi að vera hægt að skipta flöskunni hjá ÁTVR, mögulega með milligöngu starfsmannastjórans eða þess starfsmanns sem sá um jólagjafakaupin ef skyldi vera beðið um kvittun. „Slíkt gerist þó sárasjaldan og yfirleitt er fólk mjög ánægt með gjöfina.“

Afhenda innpakkað og klárt

Þurfa kaupin að fara fram í gegnum ÁTVR nema kaupandinn sé með vínveitingaleyfi og geti þar með verslað beint við heildsöluna. „Er rétt að minna á að gott er að fólk sé tímanlega á ferðinni með pantanir enda getur tekið drjúga stund fyrir ÁTVR að afgreiða pantanir fyrir stóran vinnustað.“

ai@mbl.is