Hreyfing &bdquo;Undanfarin ár höfum við gefið út eina bók á ári í bókaröðinni <strong>25 gönguleiðir</strong>. Hafa þessar handbækur fengið góðar viðtökur enda mikill áhugi í samfélaginu á útivist og göngum.&ldquo;segir Hildur.
Hreyfing „Undanfarin ár höfum við gefið út eina bók á ári í bókaröðinni 25 gönguleiðir. Hafa þessar handbækur fengið góðar viðtökur enda mikill áhugi í samfélaginu á útivist og göngum.“segir Hildur. — Morgunblaðið/Kristinn
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Í úrvalinu hjá Sölku þessi jólin er meðal annars að finna öndvegisrit Úlfars Finnbjörnssonar, Stóru alifuglabókina, og bók Margrétar Marteinsdóttur og Rakelar Garðarsdóttur um umhverfisvænan og sóunarlausan lífsstíl.

Þegar kemur að því að gefa bók í jólagjöf segir Hildur Hermóðsdóttir geta verið töluverðan mun á því hvernig bók fer í pakkann, eftir því hvort um er að ræða fyrirtækisgjöf eða gjöf milli vina og ættingja.

„Ef um starfsmannagjöf er að ræða eða gjöf til viðskiptavina þá er algengast að handbækur af ýmsu tagi verði fyrir valinu, s.s. uppskriftabækur og útivistarbækur. Að gefa t.d. skáldsögu eða ævisögu kallar á að þekkja nokkuð vel bókasmekk og áhugasvið viðtakandans og betur á færi nánustu aðstandenda að finna rétta titilinn.“

Hildur er útgefandi hjá Sölku en forlagið gefur árlega út á bilinu 30-40 titla og er rík áhersla á handbókaútgáfu.

Gengið um landið

Bendir Hildur á marga áhugaverða titla á þessu ári sem hentað geta sem fyrirtækisgjöf. „Undanfarin ár höfum við gefið út eina bók á ári í bókaröðinni 25 gönguleiðir . Byrjaði bókaröðin á höfuðborgarsvæðinu og síðan bættust við Reykjanes, Snæfellsnes, Hvalfjörður og í ár er það Borgarfjörður. Hafa þessar handbækur fengið góðar viðtökur enda mikill áhugi í samfélaginu á útivist og göngum.“

Fyrir þremur árum kom út uppskrifta- og fróðleiksritið Stóra villibráðarbókin eftir Úlfar Finnbjörnsson meistarakokk. Matgæðingar glöddust yfir þessu yfirgripsmikla riti, sneisafullu af þekkingu. „Nú er komin út Stóra alifuglabókin í sama broti. Eins og nafnið gefur til kynna kafar Úlfar nú ofan í allt sem hefur að gera með verkun og matreiðslu á kjúklingum, gæs, önd, kalkúna og öðrum matfugli. Algjör eðalbók fyrir sælkera,“ segir Hildur.

Síðustu misserin hefur mikið verið skrifað og skrafað um umhverfisvænan lífsstíl, bættar neysluvenjur og hvernig draga má úr matarsóun. Bókin Vakandi veröld - ástaróður er því svo sannarlega rétt bók, á réttum stað og á réttum tíma. „Ef fyrirtæki hafa áhuga á að stíga græn skref er gott að muna að fyrstu skrefin eru yfirleitt stigin heima. Þessi bók vekur alla til meðvitundar. Þar fjalla þær Margrét Marteinsdóttir og Rakel Garðarsdóttir bæði um hvernig við getum nýtt betur mat og aðrar vörur sem við kaupum og lifað í betri takti við náttúruna. Æ stærri hópur er meðvitaður um gildi þess að halda umhverfisáhrifum okkar í skefjum og hluti af heilbrigðu líferni er að nota vörur og matvæli sem innihalda sem minnst af óæskilegum aukaefnum. Þetta og margt fleira fjalla þær Margrét og Rakel um af mikilli þekkingu.“

Til að sökkva sér ofan í í jólafríinu

Hildur segir hægt að fara ýmsar leiðir þegar kemur að gjafapöntunum fyrir starfsmannahópa. Er t.d. pökkunarþjónusta í boði og fátt ómögulegt þegar kemur að því að tvinna bókagjöfina saman við aðrar gjafir. Geti t.d. verið upplagt að gefa í einum pakka gönguskó og gönguleiðabók eða hnífasett og matreiðslubók. „Oft er líka innpökkuð bók höfð með stærri gjöfum eins og matarkörfum svo fólk hafi bæði eitthvað gott til að snæða og skemmtilegt rit til að sökkva sér ofan í í jólafríinu.“

Að sögn Hildar fá stjórnendur góða aðstoð við að finna réttu bókina. „Oft er gefandinn með ákveðna verðhugmynd og komum við með tillögur að bókum í samræmi við það. Bækurnar sem við leggjum til taka þá mið af samsetningu starfsmannahópsins svo að meiri líkur en minni eru á að gjöfin hitti í mark.“

ai@mbl.is

Auðvelt að senda út í heim

Það er margt sem gerir bók að góðri jólagjöf. Hildur nefnir til dæmis að vönduð bók er ekki dýr en engu að síður eigulegur gripur. Er ánægjulegt að fletta vel skrifaðri bók og gjöfin getur verið mjög hagkvæm ef um handbók er að ræða. Uppskriftabækur eru mjög öruggur valkostur enda virðast flest heimili ekki geta eignast of mikið af slíkum bókum, þær fá iðulega heiðurssess í eldhúsinu og eru mikið notaðar.

„Bók er líka hentug gjöf fyrir fyrirtæki sem eiga starfsmenn og viðskiptavini dreifða um allt land eða um allan heim. Matargjafir þola illa langa flutninga og margir aðrir hlutir geta verið viðkvæmir í meðförum eða kallað á dýrt póstburðargjald. Bók er gjöf sem auðvelt er að pakka og ganga vel frá fyrir sendingu hvert á land sem er.“

Bókagjöf getur hentað sérlega vel til að gleðja útlendinga og t.d. gefið þeim skemmtilega innsýn í sögu landsins og sérkenni:

„Við bjóðum upp á nokkuð marga titla á ensku. Bókin Silver of the Sea safnar t.d. saman fróðleik um allar fisktegundir sem veiðast við Ísland ásamt uppskriftum fyrir hverja tegund. Bókin er ríkulega myndskreytt, sneisafull af fræðandi efni og ljúffengum réttum,“ segir Hildur. „Má einnig nefna bækur á borð við ljósmyndabókina Iceland 360°, mjög fallegt verk þar sem farin er hringferð um landið í ljósmyndum. Delicious Iceland er önnur góð gjafabók með blöndu af fallegum landslagsmyndum og íslenskum uppskriftum. Að lokum vil ég nefna Aðventu, gullfallega ljósmyndabók með vísun í Aðventu Gunnars Gunnarssonar, sem er fáanleg á íslensku, ensku og þýsku, og er sannarlega jólaleg jólagjöf.“