Lögreglan á Akureyri er með tvo menn í haldi sem eru grunaðir um að hafa kveikt í bifreið í bænum í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar hafa mennirnir ekki verið yfirheyrðir en það verður væntanlega gert síðar í dag. Kveikt var í bifreiðinni við Grundargerði um hálffimmleytið í morgun. Eigandi hennar starfar hjá sýslumannsembættinu á Akureyri, að sögn lögreglu.
Allt bendir til þess að bensínsprengjum hafi verið komið fyrir á bifreiðinni (glerflöskur fylltar með eldsneyti) en mesti bruninn varð utan á bifreiðinni, að sögn lögreglu. Áfram er unnið að rannsókn málsins.