L'Occitane en Provence hafa um langt árabil sett saman fallegar gjafaöskjur fyrir jólin þar sem hver og ein inniheldur vörur úr tiltekinni línu frá framleiðandanum. Af nógu er að taka í þeim efnum, eins og sjá má á myndunum hér til hliðar.
Fyrirtækið hefur um margt sérstöðu í heimi snyrtivaranna í dag. Framleiðslan er fyrst og fremst náttúruleg, og búin til í sátt við náttúruna og með virðingu fyrir fólki.
Upphafið má rekja til þess að stofnandi þess, frumkvöðullinn og Provence-búinn Olivier Baussan, festi kaup á gamaldags eimingartæki þegar hann var 23 ára, árið 1976, og notaði það til að vinna hreina ilmkjarnaolíu úr lofnarblómi og rósmaríni sem hann ræktaði sjálfur. Upp úr þessum lágstemmda upphafspunkti spratt veldi sem telur í dag um 2.000 sérverslanir staðsettar víðsvegar um heiminn, og þar á meðal á Íslandi.
jonagnar@mbl.is