Aðalstöðvar Toyota á Íslandi eru við Kauptún í Garðabæ. Í 25 ár samfleytt hefur Toyota verið mest seldi bíllinn hér á landi.
Aðalstöðvar Toyota á Íslandi eru við Kauptún í Garðabæ. Í 25 ár samfleytt hefur Toyota verið mest seldi bíllinn hér á landi. — Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á árinu 2015 fagnar Toyota á Íslandi því að 50 ár eru liðin frá því fyrsti Toyota-bíllinn var seldur á Íslandi.

Á árinu 2015 fagnar Toyota á Íslandi því að 50 ár eru liðin frá því fyrsti Toyota-bíllinn var seldur á Íslandi. Á þessum tíma hefur Toyota unnið sér sess hér á landi sem áreiðanlegur og góður bíll sem hentar vel fyrir íslenskar aðstæður og vinsældirnar eftir því.

Fyrstu Toyoturnar sem komu til landsins árið 1965 voru Crown, Corona og Land Cruiser. Corolla bættist síðan við vörulínuna í kringum 1970. Vörulínan er óneitanlega breiðari nú til dags og eru innan hennar smábílar, fjölskyldubílar, pallbílar, atvinnubílar og jeppar. Alls eru nú um 45.000 Toyotur í notkun á landinu.

Gott samband við viðskiptavini

„Við lítum á okkur fyrst og fremst sem þjónustufyrirtæki,“ segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og eigandi fyrirtækisins ásamt Kristjáni Þorbergssyni fjármálastjóra. „Svona fyrirtæki endist ekki lengi nema það átti sig á þörfum viðskiptavinanna og bjóði vöru sem hentar aðstæðum hér á landi. Við fylgjum því fordæmi sem Páll Samúelsson setti með starfsfólki sínu strax í upphafi og kappkostum á hverjum degi að standa okkur í því sem við erum að gera. Við viljum fá fólk til okkar aftur og aftur enda eru mörg dæmi um fjölskyldur þar sem allir eru á Toyota, jafnvel nokkrar kynslóðir. Okkur þykir vænt um það traust sem Toyota-eigendur hafa sýnt okkur í gegnum tíðina og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Toyota-eigendur,“ segir Úlfar enn fremur í tilkynningu.

Tímamót á tímamót ofan

Auk 50 ára afmælisins fagnar starfsfólk Toyota því nú að Toyota hefur verið mest seldi bíllinn á Íslandi á hverju ári frá 1991 eða í 25 ár samfellt, nokkuð sem teljast verður fáheyrður árangur.

Ýmislegt verður gert til hátíðabrigða á árinu. Bílasýningar verða með veglegra móti og í tilefni afmælisins verður m.a. boðið upp á sérstaka afmælisútgáfu Land Cruiser 150 - „Íslandsjeppans“ - en þar fylgir 33“ breyting með í kaupunum án aukakostnaðar.

jonagnar@mbl.is