Paul McCartney
Paul McCartney — AFP
Bítillinn Paul McCartney gefur lítið fyrir sérstök námskeið háskóla sem helguð eru tónlist Bítlanna og nemendur í tónlistarfræðum geta sótt, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC. McCartney segir slík námskeið fáránleg.
Bítillinn Paul McCartney gefur lítið fyrir sérstök námskeið háskóla sem helguð eru tónlist Bítlanna og nemendur í tónlistarfræðum geta sótt, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC. McCartney segir slík námskeið fáránleg. Bítlarnir hafi aldrei sótt námskeið í poppfræðum og líklega hefðu slík námskeið eyðilagt fyrir þeim popptónlistina sem þeir höfðu svo mikið dálæti á. McCartney segir það engu að síður mikla upphefð fyrir Bítlana að tónlist þeirra sé tekin fyrir í háskólanámi.