Hatem Ben Arfa
Hatem Ben Arfa
Hatem Ben Arfa, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka í knattspyrnu, gekk í gær til liðs við franska liðið Nice og gerði samning til ársins 2016.

Hatem Ben Arfa, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka í knattspyrnu, gekk í gær til liðs við franska liðið Nice og gerði samning til ársins 2016.

Arfa, sem er 27 ára gamall, losnaði undan samningi við Newcastle á sunnudaginn en hann var í láni hjá Hull en hrökklaðist þaðan í burtu fyrir nokkrum vikum. Hann hefur átt það til að koma sér í vandræði og hann gerði það á báðum stöðum.

Arfa, sem á 13 leiki að baki með franska A-landsliðinu, vildi komast aftur heim til Frakklands eftir að hafa spilað í fjögur og hálft ár á Englandi með Newcastle og Hull en þar áður lék með hann með frönsku liðunum Lyon og Marseille. Hann varð fjórum sinnum franskur meistari með Lyon og einu sinni með Marseille. gummih@mbl.is