Mót Ísafjörður er einn fundarstaða.
Mót Ísafjörður er einn fundarstaða. — Morgunblaðið/Kristinn
Komið er að stefnumótunarvinnu fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015 til 2019 en slíkt er gert í samræmi við fyrirhugaðan samning milli ríkis og sveitarfélaga.

Komið er að stefnumótunarvinnu fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015 til 2019 en slíkt er gert í samræmi við fyrirhugaðan samning milli ríkis og sveitarfélaga. Í áætluninni á að fjalla um nýsköpun og atvinnuþróun, menningarmál, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilega þróun á svæðinu. Haldnir verða þrír opnir fundir á Vestfjörðum til að safna og forgangsraða hugmyndum en öllum er heimilt að mæta á og taka þátt í vinnunni.

Mánudaginn 12. janúar verður fundað í Félagsheimilinu á Patreksfirði, þriðjudaginn 13. janúar verður fundað í Félagsheimilinu á Hólmavík og miðvikudaginn 14. janúar verður fundað í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði. Allir fundirnir hefjast klukkan 15. Uppkast að áætluninni verður birt á vefnum vestfirdir.is í framhaldi af fundunum og verður þá einnig hægt að gera athugasemdir og koma með tillögur. davidmar@mbl.is