Elín G. Ólafsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og kennari, lést á Landspítalanum 2. janúar s.l., 81 árs að aldri. Elín fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1933.

Elín G. Ólafsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og kennari, lést á Landspítalanum 2. janúar s.l., 81 árs að aldri.

Elín fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1933. Foreldrar hennar voru Ólafur Hafsteinn Einarsson, kennari og þýðandi og Gréta Sigurborg Guðjónsdóttir, verslunarmaður.

Elín lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1954. Hún starfaði sem kennari hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur við sérkennslu barna og unglinga frá 1954 til 1975. Þá var hún kennari við Langholtsskóla frá 1966 til 1996 og var aðstoðarskólastjóri skólans 1990 til 1996. Eftir það starfaði hún sem ráðgjafi fræðslustjórans í Reykjavík og við sérverkefni hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.

Elín var einn af stofnendum Kvennaframboðsins 1982 og sat í borgarstjórn fyrir Kvennalistann frá 1988 til 1992 og var varaborgarfulltrúi 1986 til 1988. Elín var um árabil í forystusveit kennarasamtakanna og sinnti þar mörgum trúnaðarstörfum, var m.a. formaður Kennarafélags Reykjavíkur um tíma og sat í stjórn Kennarasambands Íslands um árabil. Þá sat hún lengi í samninganefnd BSRB og var fyrsti formaður jafnréttisnefndar samtakanna.

Elín gaf út bókina Nemandinn í nærmynd og var einn af höfundum fræðsluefnisins Upp úr hjólförunum, eins fyrsta námsefnis um jafnréttisfræðslu hér á landi.

Elínu voru veitt Íslensku menntaverðlaunin af forseta Íslands árið 2007 fyrir merkt ævistarf kennara og stefnumótun og frumkvöðulsstarf í fræðslumálum hér á landi.

Elín var gift Matthíasi Haraldssyni kennara og skólastjóra en hann er látinn. Þau Matthías eignuðust sex börn en næst elsta barn þeirra hjóna, Ólafur Már, lést árið 2003. Fimm barna þeirra, sem eru á lífi, eru Valgerður, Sigurborg, Haraldur, Brynja Dagmar og Ása Björk. Öll börn þeirra hjóna vinna sem kennarar og skólastjórnendur nema Valgerður sem er fjölmiðlakona. Elín lætur einnig eftir sig níu barnabörn og þrjú barnabarnabörn.

Útför Elínar verður gerð frá Dómkirkjunni þann 20. janúar kl. 15.