West Unga fólkið kannast betur við Kanye en Paul, ef marka má Twitter.
West Unga fólkið kannast betur við Kanye en Paul, ef marka má Twitter. — AFP
Og enn af Bítlinum Paul McCartney. Á nýársdag kom óvænt út lag með honum og rappstjörnunni Kanye West, „Only One“, sem nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum enda saman komnar tvær stórstjörnur í heimi tónlistar.
Og enn af Bítlinum Paul McCartney. Á nýársdag kom óvænt út lag með honum og rappstjörnunni Kanye West, „Only One“, sem nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum enda saman komnar tvær stórstjörnur í heimi tónlistar. Ekki virðast þó allir aðdáendur West þekkja McCartney, ef marka má samskipti á vefnum Twitter. „Hver er Paul McCartney?“ skrifar einn og annar spáir „þessum Paul McCartney“ frægð og frama. Ekki fylgir sögunni hvort þessir notendur Twitter eru að spauga en fleiri eru á svipuðum nótum, segja m.a. að West sé naskur að koma auga á hæfileikaríka tónlistarmenn og hrósa honum fyrir að beina kastljósinu að óþekktum listamönnum. Ferill McCartney verði eflaust blómlegur eftir útkomu lagsins sem þeir West tóku upp í Los Angeles í fyrra.